Lífið

Fréttaþulur sprakk úr hlátri í beinni vegna mannsins sem ákvað að lifa eins og geit

Birgir Olgeirsson skrifar
Maralee Caruso og kollegi hennar réðu ekki við sig þegar fréttastöðin í Winnipeg sagði frá Bretanum sem ákvað að lifa eins og geit.
Maralee Caruso og kollegi hennar réðu ekki við sig þegar fréttastöðin í Winnipeg sagði frá Bretanum sem ákvað að lifa eins og geit. Vísir/YouTube
Fréttaþulur gat ekki haldið aftur af hlátrinum þegar hún flutti frétt af breskum manni sem ákvað að lifa eins og geit í þrjá daga.

Maðurinn sem um ræðir heitir Thomas Thwaites sem fékk nóg af daglegu rútínunni sinni í London. Atvinnulaus og stressaður á engu og öllu ákvað hann að fara til Sviss og lifa á meðal geita.

Hann sótti um styrk til að rannsaka andlega líðan geita og hóf undirbúning fyrir líf sitt með geitahjörð nærri þorpinu Wolfenschiessen í Sviss.

Hann fékk gervilimi í anda geita og meira að segja gervi-geitarmaga, sem hjálpaði honum að melta gras áður en það fór í hans meltingarfæri.

Hann sagðist hafa átt erfitt með að eignast vini á meðal geitanna. Hann óttaðist meira segja um tíma að þær myndu ráðast á hann en svo fór ekki. Fallegasta stundin að hans sögn var þegar ein af geitunum ákvað að gerast vinur hans og fylgdi honum út um allt.

Þetta var of mikið fyrir fréttaþul í Winnipeg í Kanada, Maralee Caruso, sem gat ekki haldið aftur af hlátrinum þegar hún sagði frá þessari tilraun Bretans en hægt er að fylgjast með því hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×