Innlent

Fréttastefi Ríkissjónvarpsins stolið

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá Birgi í hljóðveri, að semja eða vinna í tónlist.
Hér má sjá Birgi í hljóðveri, að semja eða vinna í tónlist.
Upphafsstefinu í fréttatíma Ríkisútvarpsins hefur verið stolið. Stofnunin Alexandra Palace Television Society notar stefið á Youtube-síðu sinni, en myndböndin sem stofnunin birtir eru mörg hver ansi vinsæl; horft hefur verið á þau í yfir tvær og hálfa milljón skipta.

Stefið úr fréttum RÚV er spilað á undan öllum myndböndunum sem birtast á síðunni, eins og sjá má hér að neðan.

Birgir Tryggvason heitir maðurinn sem samdi stefið fyrir fréttatímann. Hann er vanur í þessum bransa, hann samdi til að mynda einnig upphafsstefið fyrir þættina Logi í Beinni og Stelpurnar. Hann er ekki sáttur og hefur haft samband við aðstandendur síðunnar og STEF vegna málsins:





„Þetta er ólöglegt. Þetta er óþolandi. Þetta er í fjórða sinn sem ég heyri stefið notað ólöglega annarsstaðar. Ég sendi vinsamlegt bréf á þessa sem eru með síðuna og bað þá að taka þetta út. Síðan hafði ég samband við STEF til þess að hjálpa mér í málinu.“ segir hann ósáttur og bætir við:

„Maður hefur heyrt að fréttastofur á Rhodes og Forteventura hafi notað þetta stef. Ég hef líka heyrt stefið úr Logi í beinni notað einhversstaðar erlendis. Ef byggi einhversstaðar annarsstaðar þá væri þetta ekki vinsamlegt bréf sem ég hefði sent þeim, heldur væri kæran þúsundföld.“

Íslenskir tónlistarmenn berskjaldaðir

Birgir segir að íslenskir tónlistarmenn séu nokkuð berskjaldaðir gagnvart ólöglegri notkun á síðum eins og Youtube. „Maður veit af því að Youtube reynir að taka út tónlist erlendra tónlistarmanna, þegar hún er notuð ólöglega í myndböndum sem fólk setur inn. En við erum svo lítið markaðssvæði að það er ekkert gert í þessu fyrir Íslendinga.“

Hann segir að það sé óþoloandi að sjá vinnu sinni stolið svona. „Hugverk er alltaf hugverk. Ég fer ekki heim til fólks þegar það er nýkomið úr Bónus og tek nautalundina sem það var að kaupa.“

Ef stefinu hefur verið stolið svona oft, er það ekki þá líka til marks um að þetta sé vel heppnað stef?

„Þetta er vel heppnað stef jú,“ svarar Birgir og segir það vera með því betra sem hann hefur gert „ásamt kannski stefinu fyrir Stelpurnar.“

En hvað þarf að einkenna gott stef?

„Það skiptir máli að stefið sé ekki pirrandi í byrjun. Stefið gengur upp ef engum finnst það í lagi til að byrja með, en svo þegar fólk heyrir það aftur og aftur fer því að líka við það. En þetta er auðvitað ákveðin heppni að hitta á gott stef.“

Birgir segist vona að þetta verði í síðasta sinn sem hann þurfi að standa í stappi. „Já, þetta er rosalega leiðinlegt. Þarna er verið að stela frá Ríkissjónvarpinu. Mörgum finnst þetta vera þeirra stef. Ég vona að þetta komi bara ekkert fyrir aftur.“

APTS verðlaunað

Á vefsíðu Alexandra Palace Television Society, sem reyndar virðist komin svolítið til ára sinna, er tekið fram að samtökin hafi unnið til hinn svokallaða Shiers Trust styrk árið 2001. Styrkurinn er veittur af hinum svokölluðu Royal Television Society samtökum. Styrkurinn er veittur árlega er er allt að tvö þúsund pund, eða tæplega fjögur hundruð þúsund krónur. Markmiðið með styrkveitingunni er að verðlauna þá sem rannsaka, kynna og kenna sögu sjónvarpsins á einhvern hátt. Meðal þeirra sem hafa fengið styrk er sir David Attenborough, sjónvarpsmaðurinn frægi.

Á Youtube-síðu APTS-samtakanna kemur fram að samtökin vilji varðveita munlega og skriflega sögu frumkvöðla í þróunar sjónvarpsins. Nafn samtakanna er dregið af Alexandra Palace í norðurhluta Lúndúna, en á síðunni kemur fram að þar hafi fyrstu reglulegu, skýru sjónvarpsútsendingarnar hafist árið 1936. 

Einnig er tekið fram að allir þeir sem steli efni af síðunni verði tilkynntir til stjórnenda Youtube.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×