Skoðun

Fréttalottó

Ívar Halldórsson skrifar
Sunnudagurinn missir ljómann við fyrsta fréttagal og systkinin Ólukka og Óskundi fá að sitja í stafni, og stýra fréttaskútunni er hún klýfur fyrirsjáanlegar fréttaöldur ljósvakans.

Það er eitthvað svo huggulegt við það að vakna á sunnudagsmorgni, kveikja á útvarpinu og fá upplýsingar um stúta og stympingar næturinnar.  Maður getur hreinlega ekki lengur hugsað sér að fara á fætur fyrr en maður hefur fengið nákvæmar fréttir af riddurum götunnar; baráttu þeirra við hraðamúrinn og lögskipaða verði hans. Þá vill maður varla fara í sturtu fyrr en maður veit með vissu hversu margir fengu blóðnasir, hversu margar rúður brotnuðu í miðbænum og hversu margir misstu rænu vegna óhóflegrar víndrykkju. Þetta er fréttir sem maður vill ekki missa af. Djók!

En til að lífga upp á þessa mónótónísku og hefðbundnu fréttarullu væri þó kannski hugmynd að gera léttan leik úr þessu meinta vinsældarefni. Gætum kallað leikinn "Fréttalottó!"

Á sunnudagsmorgni er maður tilbúinn í leikinn tímanlega, með heitan kaffibollann upp í rúmi og sperrt eyrun. Með tilhlökkun bíður maður eftir að heyra í hvaða röð eða hversu margar af eftirfarandi fréttafyrirsögnum eru lesnar upp:

„Ungur maður var gripinn réttindalaus af lögreglu á 120 kílómetra hraða á Vesturlandsveginum í nótt.“

„Maður í annarlegu ástandi lenti í stympingum við lögreglu fyrir utan skemmtistað á þriðja tímanum í nótt.“

eða

„Mikið var um ölvun í borginni í nótt og þurfti lögregla að hafa afskipti af fjölmörgum gestum miðbæjarins.“

Maður kallar hátt og skýrt: „Fréttalottó!“ og veitir sjálfum sér verðlaun í hvert skipti sem fullkomin þrenna næst - þ.e. þegar allir ofangreindir liðir eru lesnir upp af þeim sem les morgunfréttirnar í þessum eina og sama fréttatíma. Verðlaunin gætu verið dekurpakki frá Bláa lóninu, glingur frá Leonard eða bara kleinuhringur að eigin vali frá Dunkin Donuts.

En svona í alvöru, sem dyggur hlustandi morgunfrétta á sunnudagsmorgnum finnst mér því miður fyrirsjáanlegar "copy-paste" fréttir af næturlífi miðborgarinnar vera allt of stórt hlutfall umrædds fréttatíma. Sunnudagurinn sem hefur gegnum tíðina verið kenndur við sælu, missir þarna ljómann við fyrsta fréttagal og systkinin Ólukka og Óskundi fá að sitja í stafni, og stýra fréttaskútunni er hún klýfur fyrirsjáanlegar fréttaöldur ljósvakans. 

Ég vil hvetja fréttastjóra að hugleiða að setja eitthvað annað en áfengisdrykkju og hraðakstur í forgrunn fréttatíma á sunnudagsmorgnum. Þetta er hvort sem er alltaf sama sagan; áfengi, hraðakstur og ókeypis næturgisting fyrir hörðustu vínsvelgina, í fangageymslum lögreglunnar. Ekkert nýtt undir sólinni þarna. Þetta er orðið álíka upplýsandi eða áhugavert og upplestur innkaupalista fyrir helgarinnkaup í Bónus. 

Spurning um að taka fund á þetta og kanna hvort miðbæjar-tragedían megi hugsanlega víkja fyrir einhverju jákvæðara og efnislegra - eða jafnvel einhverju fréttnæmara á sunnudagsmorgnum. Það hlýtur einfaldlega að vera eitthvað annað að frétta.

Persónulega finnst mér ekki í frásögur færandi þegar átök eiga sér stað milli dyravarða og djammara, eða þegar einhver á ekki fyrir leigubíl á laugardagskvöldi...

...ekki frekar en að fólki finnist almennt fréttnæmt hvaða borði ég er á í Candy Crush.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×