Innlent

Frestur til að skila inn lögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins útrunninn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Greta Salóme tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í ár.
Greta Salóme tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í ár. vísir/pressphotos
Frestur til að skila inn framlögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2017 rann út í hádeginu í dag. Fjöldi laga barst Ríkisútvarpinu og mun lagavalnefnd hefja störf strax á morgun, að sögn Rúnars Freys Gíslasonar, verkefnastjóra keppninnar.

„Valnefnd hefur störf núna um helgina og skilar af sér þegar hún hefur komist að niðurstöðu, sem verður einhvern tímann um helgina. Þá verður talað við þá sem koma til greina og við gerum ráð fyrir því að þetta verði komið á hreint fyrsta desember,“ segir Rúnar í samtali við Vísi. Hann segir að við fyrstu sýn séu lögin líklega fleiri en í fyrra, en að enn eigi eftir að yfirfara þau öll.

Sjá einnig:Besta íslenska lagið sem ekki vann undankeppnina

Leynd yfir framlögunum og valnefndinni

Samkvæmt reglum keppninnar þurfa höfundar að velja sér dulnefni þegar þeir skila inn framlagi sínu þar sem lagavalnefnd fær aðeins uppgefin dulnefnin og nöfn laga í valferlinu, en að sögn Rúnars hvílir jafnframt leynd yfir því hverjir sitja í umræddri lagavalnefnd. Nefndin sé hins vegar skipuð af tveimur fulltrúum úr Félagi tónskálda og textahöfunda, tveimur frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna og þremur frá Ríkisútvarpinu.  

Öll lög eru flutt á íslensku í forkeppninni, en þau lög sem komast áfram í úrslit skulu flutt á því tungumáli sem höfundur hyggst flytja lagið á í Eurovision í Úkraínu, skyldi það vinna.

Sjá einnig:Átján skipa dómnefnd Söngvakeppninnar

Söngvakeppnin fer fram í þremur beinum útsendingum. Forkeppnir verða 25. febrúar og 4. mars í Háskólabíó og úrslitin fara fram í Laugardalshöll 11. mars.

Keppnin var með glæsilegasta móti í ár í tilefni af þrjátíu ára afmæli hennar og að sögn Rúnars verður aftur lagt allt í að gera keppnina eins glæsilega og síðast. „Þetta þótti takast svo vel að vera með tvær forkeppnir í Háskólabíó og eina stóra bombu í Laugardalshöll að við ætlum að gera þetta aftur. Við erum byrjuð að skipuleggja og það er allt að fara af stað núna. Þetta er náttúrulega ótrúlega stór og viðamikil keppni og margt að athuga,“ segir Rúnar.

Sjá einnig:Saga einvíga í Söngvakeppni Sjónvarpsins

Rúnar vill þó ekki gefa upp hver áætlaður kostnaður við keppnina sé, en að líklega verði hann sá sami og síðast, eða í kringum sextíu milljónir. Á vef RÚV segir að keppnin hafi staðið undir sér í fyrra með tekjum af miðasölu og auglýsingum.

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin 9. maí næstkomandi í Kænugarði í Úkraínu. Heyra má lagið sem bar sigur úr býtum í keppninni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×