Lífið

Frestar tónleikaferð

Lana Del Rey er búin að glíma við veikindi í hátt í tvö ár.
Lana Del Rey er búin að glíma við veikindi í hátt í tvö ár. Vísir/Getty
Söngkonan Lana Del Rey sendi á mánudag frá sér tilkynningu þess efnis að hún þyrfti að fresta tónleikaferð sinni um Evrópu.

Ástæðuna segir hún vera veikindi sem hún sé búin að glíma við í hátt í tvö ár.

„Ég er bara alltaf veik, það er bara orðinn partur af lífi mínu. En læknarnir geta ekki fundið út hvað er að hrjá mig, þetta er eitthvað mjög sjaldgæft“, segir söngkonan.

Fyrirhugaðir eru tónleikar með söngkonunni í Mexíkó í október en ekki hefur verið gefið út hvort þeim verður frestað líka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×