Frestaði ákvörðun um Magma 18. mars 2010 17:45
Nefnd um erlendar fjárfestingar frestaði á fundi sínum í dag, ákvörðun um hvort dótturfélagi kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, væri heimilt að eiga hlut í HS orku. Búist var við því að nefndin tæki í dag ákvörðun um hvort það standist lög að dótturfélag Kanadíska Orkufyrirtækisins Magma Energy, ætti hlut í HS orku, orkufyrirtæki Reyknesinga. Eftir hátt í þriggja klukkustunda fund, var hins vegar ákveðið að fresta ákvörðun til mánudags. Unnur Kristjánsdóttir, formaður nefndarinnar og fulltrúi Samfylkingarinnar í henni, hefur ekkert viljað tjá sig um málið. Samkvæmt lögum um takmarkanir á erlendri fjárfestingu, geta einungis íslenskir aðilar eða aðilar af evrópska efnahagsvæðinu átt í orkufyrirtækjum. Nefndin hefur fjallað um málið mánuðum saman og látið vinna fyrir ítarleg lögfræðiálit um málið. Fréttastofan greindi frá því fyrir allnokkru, að í áliti frá lagastofnun væri ekki skorið úr um málið. Rök væru fyrir því að heimila fjárfestinguna og einnig rök á móti. Magma Energy Sweden á nú tæplega fjörutíu og eins prósents hlut í HS orku. Sænska félagið var stofnað sérstaklega til að fjárfesta hérlendis.En geysir green energy á næstum allt hitt. Eftir því sem næst verður komist mun nefndin fallast á að kaup Magma á hlutum í HS orku standist íslensk lög. Þó sé ekki útilokað að nefndin komist að annarri niðurstöðu, leiði umræður í nefndinni til þess.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira