Fótbolti

Frestaða leiknum lauk með jafntefli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn PSV fagna í rigningunni í gær.
Leikmenn PSV fagna í rigningunni í gær. Vísir/AFP
Portúgalska félagið Estoril og PSV frá Hollandi skildu jöfn, 3-3, í Evrópudeild UEFA nú síðdegis. Fresta varð leiknum að loknum fyrri hálfleik í gær vegna mikillar rigningar en þá var staðan 3-2, Portúgölunum í vil.

Georginio Wijnaldum skoraði eina mark síðari hálfleiksins á 82. mínútu og tryggði PSV þar með annað stigið. Það nægði til að tryggja Hollendingum sæti í 32-liða úrslitum keppninnar.

Dinamo Moskva er langefst í E-riðli með fullt hús stiga að loknum fimm umferðum en PSV kemur næst með átta stig. Estoril er nú með fjögur og getur því ekki lengur náð Hollendingum að stigum. Panathinaikos rekur lestina með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×