Golf

Fresta þurfti leik á RBC Heritage vegna veðurs

K.J. Choi slær inn á áttundu holu í gær.
K.J. Choi slær inn á áttundu holu í gær. AP/Vísir
Leik á RBC Heritage mótinu var frestað skömmu eftir klukkan þrjú að staðartíma í gær eftir að mikinn storm gerði á Hilton Head. Alls áttu rúmlega 70 kylfingar eftir að klára sinn hring en þeir munu hefja leik snemma í dag til þess að vinna upp tapaðan tíma og klára annan hring.

Þeir kylfingar sem fóru snemma út í gær og náðu að klára græddu heilmikið á storminum en meðal þeirra er Suður-Kóreumaðurinn K.J. Choi. Hann leiðir mótið, samtals á fimm höggum undir pari en hann var meðal fyrstu manna út í gær og gat því klárað sinn hring í ágætum aðstæðum. Luke Donald, fyrrum efsti maður á heimslistanum, gerði slíkt hið sama og er jafn í þriðja sæti á þremur höggum undir pari.

Það sama verður þó ekki sagt um Matt Kuchar sem leiddi mótið eftir fyrsta hring en hann var í hópi þeirra kylfinga sem lentu hvað verst í veðrinu. Hann lék aðeins fyrstu fimm holurnar áður en leik var frestað, á fjórum höggum yfir pari og er jafn í 16. sæti eins og er.

Línur munu því heldur betur skýrast í dag en sýnt verður beint frá mótinu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×