Innlent

Fresta sýningu á þáttaröðinni Horfin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þáttaröðin Horfin fjallar um rannsókn á hvarfi ungrar manneskju sem finnst látin í þýskum smábæ ellefu árum eftir að hún hvarf, að því er segir á vef RÚV.
Þáttaröðin Horfin fjallar um rannsókn á hvarfi ungrar manneskju sem finnst látin í þýskum smábæ ellefu árum eftir að hún hvarf, að því er segir á vef RÚV. BBC
RÚV hefur ákveðið að fresta sýningu þáttaraðarinnar Horfin (The Missing) sem hefjast átti í kvöld um óákveðin tíma. Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV, segir ástæðauna vera til að sýna aðstandendum Birnu Brjánsdóttur og öðrum sem eiga um sárt að binda vegna hvarfs hennar tillitsemi. RÚV greindi fyrst frá.

„Þetta er svo sjálfsagt mál og auðafgreitt í ljósi þess að þátturinn átti að hefjast göngu sína í kvöld. Við getum alveg beðið með þessa þáttaröð þar til óvissuástand er minna og sálarlíf þjóðarinnar í betra ástandi.“ 

Starfsmaður RÚV hugsi þegar hann sá stikluna

„Þetta er svo sjálfsagt mál og auðafgreitt í ljósi þess að þátturinn átti að hefjast göngu sína í kvöld. Við getum alveg beðið með þessa þáttaröð þar til óvissuástand er minna og sálarlíf þjóðarinnar í betra ástandi.“ 

Skarphéðinn segir engar athugasemdir hafa borist vegna fyrirhugaðrar þáttaraðar. Í morgun hafi farið af stað umræða innanhúss en einhver hafði séð stiklu úr þættinum í gær og haft orð á að best væri að fresta sýningu.

„Við skoðuðum þáttinn betur og komumst að þessari sameiginlegu niðurstöðu.“

Engin ástæða til að hræra í sálarlífi þjóðarinnar

Þáttaröðin er skáldskapur en gæti mögulega komið óþægilega við einhverja aðstandendur eða hvern sem er. RÚV sjái enga ástæðu til að vera að hræra í því.

Þáttaröðin Horfin fjallar um rannsókn á hvarfi ungrar manneskju sem finnst látin í þýskum smábæ ellefu árum eftir að hún hvarf, að því er segir á vef RÚV. Rannsókn lögreglu á þeim tíma sem hún hvarfi skilaði engum árangri. Rannsóknarlögreglumaðurinn, sem annaðist málið á sínum tíma, er ákveðinn í því að leysa málið.

Mynd um rannsóknir Barnabys lögreglufulltrúa verður á dagskrá sjónvarps í kvöld í stað Horfins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×