Innlent

Fresta framkvæmdum við öldrunarheimili

Sveinn Arnarsson skrifar
Hlíð á Akureyri er stærsta öldrunarheimili Norðurlands með um 140 íbúa á níu deildum. Endurbætur eru brýnar á tveimur deildum.
Hlíð á Akureyri er stærsta öldrunarheimili Norðurlands með um 140 íbúa á níu deildum. Endurbætur eru brýnar á tveimur deildum. Fréttablaðið/Heiða

Fyrirhuguðum framkvæmdum við Öldrunarheimili Akureyrar (ÖA) verður frestað og ekki verður farið í endurbætur á tveimur deildum öldrunarheimilanna á næsta ári eins og stóð til. Forstöðumaður ÖA telur endurbæturnar aðkallandi því húsnæðið sé barn síns tíma.

„Stækka þarf einstaklingsrými og endurnýja öll baðherbergi að þeim lágmarksstærðum sem gilda í dag,“ segir Halldór Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður ÖA.

„Fara þarf í heildarendurnýjun á hverri íbúðareiningu svo íbúar hafi eigin snyrtingar sem gera ráð fyrir aðgengi hjálpartækja. Núverandi bað- og snyrtiaðstaða og aðgengi er erfitt, auk þess sem baðaðstaða í 18 baðherbergjum íbúa er ekki að nýtast þeim vegna erfiðleika með aðgengi og leka í gólfi eða vegg.“

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs

Öldrunarheimili Akureyrar reka tvö heimili fyrir alls 188 íbúa. Framkvæmdirnar voru áætlaðar á tveimur af elstu álmum stofnunarinnar.

„Fyrir íbúa, aðstandendur og starfsfólk eru endurbæturnar löngu tímabærar, enda húsnæðið upphaflega hannað fyrir mjög sjálfstæða einstaklinga. Húsnæðið er nú nýtt af íbúum sem þurfa hjúkrun og aðstoð við ólík verkefni,“ segir Halldór og segir þarft að breyta húsnæðinu sem fyrst.

„Nægir í þessu efni að vísa til þess að Framkvæmdasjóður aldraðra hefur veitt framlag sitt vegna hluta af endurbótunum, vegna þess að þær teljast og metast vera mjög þarfar og í forgangi.“

Á síðasta fund velferðarráðs Akureyrar mætti formaður bæjarráðs til að ræða þessar framkvæmdir. Eftir umræður á fundinum var bent á að samkvæmt framkvæmdaáætlun bæjarins er endurbótum slegið á frest. Hins vegar hefur engin framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár verið samþykkt og fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár liggur enn ósamþykkt í bæjarstjórn.

Því er ekki hægt að sjá afstöðu nefndarinnar til endurbóta á húsakosti ÖA. „Nú er unnið að því að skoða rekstur Öldrunarheimila Akureyrar og á meðan sú heildarendurskoðun er í gangi þykir okkur ekki farsælt að fara í framkvæmdir. KPMG vinnur að þessari skýrslu og von er á þeirri skýrslu innan tíðar,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×