Innlent

Fresta boðuðu verkfalli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekkert verður að verkfalli háskólakennara.
Ekkert verður að verkfalli háskólakennara.
Boðuðu verkfalli Félags háskólakennara hefur verið frestað. Háskólakennarar skrifuðu undir nýjan kjarasamning við ríkið í húsakynnum ríkissáttasemjara síðdegis.

Félag háskólakennara hefur fundað með ríkissáttarsemjari í dag og er þetta niðurstaðan eftir stíf fundarhöld. Lokapróf fara því fram á lögbundnum próftíma. Samningurinn verður kynntur háskólakennurum eftir páskafrí og í framhaldinu borinn undir atkvæði félagsmanna.

Í framhaldi af ákvörðun Félags háskólakennara um að fresta boðuðu verkfalli dagana 25. apríl til 10. maí 2014, eftir viðræður við Samninganefnd ríkisins, vill rektor Háskóla Íslands taka eftirfarandi fram:

Afar mikilvægt er fyrir 14.000 nemendur Háskóla Íslands að ekki komi til verkfalls. Slíkt hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér.

Á undanförnum árum hafa félagsmenn Félags háskólakennara tekið á sig launaskerðingu, aukna kennsluskyldu og aukið álag vegna mikillar fjölgunar nemenda. Háskóli Íslands mun koma til móts við óskir Félags háskólakennara eftir fremsta megni.

Samhliða því treystir Háskóli Íslands á stuðning stjórnvalda, sbr. yfirlýsingu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar um Aldarafmælissjóð. Hún felur í sér að staðið verði við samning varðandi stefnumótun um fjármögnun Háskóla Íslands þannig að tekjur hans verði sambærilegar meðaltali framlaga OECD-þjóða til háskóla og síðar meir meðaltali framlaga háskóla á Norðurlöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×