Erlent

Frelsisstyttan í New York rýmd

Atli Ísleifsson skrifar
Ferðamenn hafa verið fluttir á brott í ferjum.
Ferðamenn hafa verið fluttir á brott í ferjum. Vísir/Getty
Frelsisstyttan í New York og eyjan sem hún stendur á voru rýmd síðdegis í dag eftir að lögreglu barst tilkynning um grunsamlegan pakka. NBC greinir frá þessu.

Ferðamenn voru fluttir á brott í ferjum fljótlega eftir að lögregluhundar fundu umræddan pakka. Sprengjusérfræðingar hafa verið kallaðir á vettvang.

Ferðamenn birtu margir myndir af hundruðum manna sem biðu eftir næstu ferju á einni bryggjunni á Frelsiseyju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×