Innlent

Frárein af Miklubraut á Höfðabakka fræsuð í dag

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Þeir sem hyggjast ferðast úr miðbæ Reykjavíkur upp á Höfðabakka ættu að gera ráð fyrir aðeins lengri ferðatíma en vanalegt er.
Þeir sem hyggjast ferðast úr miðbæ Reykjavíkur upp á Höfðabakka ættu að gera ráð fyrir aðeins lengri ferðatíma en vanalegt er. Vísir/Valli
„Í dag fimmtudaginn 30. júlí verður unnið við fræsingu og malbikun frá frárein af Miklubraut og upp á Höfðabakka. Vinna hefst klukkan sjö og stendur fram eftir degi. Búast má við umferðartöfum á meðan á framkvæmdum stendur,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

„Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 kílómetrahraða á klukkustund. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni,“ segir jafnframt.

Þá eru hálendisvegir flestir opnir en lengst af í júlí var ófært á mörgum þeirra. Vænlegast er að athuga nánar með vegi ef til stendur að halda upp á hálendi. Ítarlegar upplýsingar má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×