Menning

Framundan er stærsta árlegt Baby Shower í heimi

Magnús Guðmundsson skrifar
Jóní og Eirún í Gjörningaklúbbnum ásamt fleirum sem komu að gjörningnum í Malmö.
Jóní og Eirún í Gjörningaklúbbnum ásamt fleirum sem komu að gjörningnum í Malmö.
Gjörningaklúbburinn hefur verið áberandi afl í heimi myndlistar á Íslandi og reyndar víðar um langt skeið. Verk klúbbsins grípa oft athygli almennings og heilla áhorfendur með hugvitssamlegum hætti þar sem tekist er á við margt það sem hæst ber í samfélaginu hverju sinni. Gjörningaklúbbinn hafa lengi skipað þær Jóní Jónsdóttir, Eirún Sigurðardóttir og Sigrún Hrólfsdóttir en sú síðastnefnda er nú í starfsleyfi frá hópnum eftir að hafa verið ráðin sem deildarforseti myndlistardeildar við Listaháskóla Íslands.

Gjörningaveisla

Síðastliðinn fimmtudag frumsýndi Gjörningaklúbburinn nýjan gjörning í Lillith Performance Studio í Malmö, en það er eitt af fáum galleríum sem sérhæfa sig í gjörningalist, en verkið er hluti af þríleik sem klúbburinn hefur unnið á þessu ári. Jóní Jónsdóttir segir að Gjörningaklúbburinn hafi verið á mikilli siglingu að undanförnu og í mörg horn að líta. „Fyrir rúmu ári gerðum við stóra einkasýningu í Aarhus listasafninu í Árósum sem er stórt og framsækið safn og svo höfum við verið að vinna að þessari trílógíu sem við erum svo að ljúka hérna í Malmö þessa dagana. En svo hefur sitthvað annað verið í gangi líka sem væri kannski of langt mál að telja.

Jóní segir að verkefnið í Malmö hafi komið til út frá því að Lillith Performance Studio eigi afmæli um þessar mundir og að þar sé unnið út frá þema sem kallast You Are Invited (Boðið) allt árið. „Þetta er sett upp sem kvöldverður þar sem listamenn hafa frjálsar hendur með það hvernig er staðið að þessu kvöldverðarboði í hvert eitt sinn. Fimm listamönnum eða listhópum af þeim fjölda listamanna sem sýnt hafa hjá þeim síðastliðin 10 ár var boðið til þess að standa fyrir slíkri veislu á afmælisárinu og þegar það varð ljóst að við ættum að fá að vera í desember þá tók hugmyndavinnan nú óneitanlega mið af því.“

Gestir tóku þátt í brauðbakstri, söng og ýmsu fleiru skemmtilegu.
Fæðingin sameinar

Jóní segir að vissulega hafi jólahátíðin verið þeim ofarlega í huga en að auki þá hafi Gjörningaklúbburinn unnið talsvert með hugmyndina um Maríu mey. „Hver var María? hvernig kona var hún? Fékk hún einhvern tíma tækifæri til þess að samþykja það að hún ætti allt í einu að bera son guðs? Hvað um hennar sjálfsákvörðunarrétt yfir eigin lífi og líkama?

Allt tengist þetta beint inn í #metoo umræðuna og það sem er að gerast í heiminum eins og í Bandaríkjunum þar sem hlutirnir eru að fara aftur á bak með Trump og konur eiga enn frekar undir högg að sækja en áður. Í lífssýn Trumpismans eru konur ekki jafn mikils virði og karlar, eiga ekki að hafa yfirráðarétt yfir því hvort þær eignast börn eða fara í fóstureyðingar og þannig mætti áfram telja óteljandi vangaveltur um stöðu kvenna út frá þessum Maríupælingum og hugmyndum okkar um hana.“

Fyrsti gjörningur þríleiksins var svo fluttur á Siglufirði á föstudaginn langa sem Jóní segir að hafi óneitanlega verið meðvitað dagaval. „Síðan þá eru liðnir níu mánuður en við höfum verið að byggja þetta upp sem meðgöngu allt frá getnaði til fæðingar. Um meðgönguna miðja vorum við svo á Gjörningahátíðinni á Akureyri og þar bauðst gestum að koma með okkur í meðgöngu. Meðgangan fólst í því að ganga saman – sem sagt með-ganga. Síðasti hluti þríleiksins var svo núna hér í Malmö þar sem við stóðum fyrir svokölluðu Baby Shower sem felur í sér ákveðna sameiningu og fögnuð yfir fæðingunni. Yfirleitt er það sem betur þannig að þegar börn fæðast inn í þennan heim þá fylgir því gleði og sameining, þó að það sé vissulega ekki alltaf eða sjálfgefið, en við vonum það.“

Jóní, Ingrid Bogren eða hin vitra kona og Eirún í Lillith Performance Studio þar sem síðasti hluti gjörningsins var fluttur síðastliðinn fimmtudag.
Öld Vatnsberans

Jóní segir að markmið gjörningsins sé að sameina fólk og virkja það einnig í fögnuðinum. „Gestirnir hnoða með okkur deig, fylgjast með lyftingu þess og aðstoða okkur við að byggja upp viðburðinn. Við fáum fólk til þess að syngja með okkur til þess að hita upp fyrir lífið enda er það alveg klassísk leið til þess að sameina fólk. Þetta gekk roslega vel strax fyrsta kvöldið því það voru allir til í að taka þátt, syngja með og sameinast í gleðinni og það var ægilega gaman. En svo eru þessar femínísku pælingar aldrei langt undan og við gleymum ekkert að fá fólk til þess að horfast í augu við þær.“

Fyrir nokkrum árum hófst öld Vatnsberans sem Jóní segir að sé öld sameiningar í kjölfar sundrungar þótt það sé kannski ekki að sjá á ástandi heimsins enn sem komið er. „Það er líka talað um að þá nái konur líka jafnari stöðu gagnvart körlum og að mannvirðing verði í öndvegi.“

Jóní segir að Gjörningaklúbburinn muni sýna í Malmö yfir helgina en svo sé kominn tími á að halda heim. „Þá erum við að fara að koma heim í árlegt stærsta Baby Shower í heimi þegar allir kristnir fagna fæðingu Jesúbarnsins,“ segir Jóní að lokum og hlær.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×