Skoðun

Framtíðarsýn mín sem gamalmenni

Baldur Vignir Karlsson skrifar
Ég á mér framtíðarsýn þar sem ég er hamingjusamt og farsælt gamalmenni. Þar sem börnin mín og þeirra kynslóð bera virðingu fyrir mér og hinum eldri borgurunum vegna þess að við erum búin að vera svo ansi dugleg í að byggja upp og gera og græja fyrir samfélagið sem við lifum í. Það þykir sjálfsagt að við eigum áhyggjulaus ævikvöld.

Þetta er framtíðarsýn þar sem stjórnvöld eru fyrir löngu búin að búa svo um hnútana að þau vitrustu á meðal okkar og þau sem minnst mega sín þurfa ekki að hafa afkomu áhyggjur, því nógar eru áhyggjurnar aðrar, og þar sem barnabörnin mín þurfa ekki að kvíða því að fljúga úr hreiðrinu vegna þess að það er nær ómögulegt að flytja í sitt eigið húsnæði eða leigja á mannsæmandi verði.

Þetta er framtíðarsýn þar sem orðið: „Tekjuskerðing“, er ekki lengur að finna í orðabókinni. Hvort sem verið er að tala um ellilífeyri, örorkubætur, barnabætur eða námslán.

Ég er hinsvegar bara 37 ára og veruleikinn er töluvert öðruvísi í dag. Hann er ekki alslæmur, bara öðruvísi. Við lifum í einu ríkasta landi í heimi, og vissulega eru góðir hlutir að gerast. En þrátt fyrir það lifa tæplega 10% barna undir fátækramörkum. Öryrkjar, sem hafa ekkert val um að fæðast blind eða heyrnarlaus, verða veik á líkama eða sál eða lenda í hræðilegum slysum, ná mjög illa endum saman. Helmingur gamalmenna lepur dauðann úr skel á grunnlífeyri, ungt fólk á erfitt með að finna sér sómasamlegt húsnæði og námsmenn þurfa helst að vinna 100% vinnu með námi til að forða sér frá námslánum sem þeir annars væru áratugi að borga til baka.

Siðferðislega ábótavant

Við erum með fólk á æðstu stöðum samfélagsins sem gefur skít í ákveðna hópa þangað til rétt fyrir kosningar og við þurfum að losa okkur við það. Það er reyndar löglegt að gefa skít í ákveðna hópa, en ég held við getum flest verið sammála um að það er siðferðislega ábótavant. Löglegt en siðlaust er ekki dyggð þó margir séu farnir að trúa því. Það er enginn rétt leið að gera rangan hlut. Ef rýnt er í tölur frá ríkiskattstjóra og Hagstofunni kemur í ljós að milli 2013-2016 hefur bein skattbyrði á lágtekju- og millitekjufólk aukist á meðan álögum hefur verið létt af stóreignafólki og hátekjuhópum.

Viljum við ekki betra samfélag en þetta? Ég held það. Til dæmis væru 300.000kr skattleysismörk, afnám tekjuskerðinga og námsstyrkir í staðinn fyrir námslán góð byrjun. Og auðvitað að kjósa Flokk Fólksins.

Við erum nokkuð mörg í Flokki Fólksins með leiðtogahæfileika í tonnatali en við erum bara með eitt náttúruafl, og það er Inga Sæland. Ég mun stoltur þramma fyrir aftan hana alla leið inn á Alþingi með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. X-F!






Skoðun

Sjá meira


×