Innlent

Framtíð skops: Langtímaáhrif morðanna á ritstjórn Charlie Hebdo

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hugleikur Dagsson mun taka til máls á málþinginu.
Hugleikur Dagsson mun taka til máls á málþinginu. Vísir/skjáskot/getty/stefán
Málþing á vegum Námsbrautar í menningarfræði við Háskóla Íslands fer fram á föstudaginn í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, og stendur yfir frá 12-13. 

Áhrif morðanna í París verða þar til umræðu en tólf manns létust og sjö særðust eftir að hettuklæddir menn réðust inn á ritstjórnarskrifstofur satírutímaritsins Charlie Hebdo í 11. hverfi Parísarborgar.

Þrátt fyrir merkilegan einhug um andspyrnu gegn ofbeldi og samstöðu um mikilvægi tjáningarfrelsis í vestrænum samfélögum hafa morðin sem framin voru á ritstjórn franska skopmyndaritsins Charlie Hebdo dregið fram ágreining um inntak háðsádeilu og skops og mörk hins réttlætanlega í gríni og háði.

Umræðan vekur áleitnar spurningar um hlutverk og beitingu háðs í opinberri umræðu. Að hve miklu leyti krefjast mannréttindi og ýmis grunngildi lýðræðis þess að háði sé stillt í hóf og að í skopi forðist fólk staðalmyndir og tilvísanir til kynþáttaeinkenna eða sérkenna af einhverju tagi?

Eru skoprit á borð við Charlie Hebdo útgáfur sem umburðarlyndi hins vestræna samfélags kemur í veg fyrir að séu bönnuð en fiska þó í gruggugu vatni fordóma og staðalmynda? Eða er þessu öfugt farið: Er háð eitt grundvallarform andófs í samfélaginu?

Frummælendur verða:

• Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði

• Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði

• Hugleikur Dagsson, höfundur með fókus á grín

Fundarstjóri: Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði


Tengdar fréttir

Mótmæli gegn mótmælum

Tugir þúsunda héldu út á götur Þýskalands í gær til þess að lýsa andstöðu við PEGIDA-hreyfinguna, sem einnig efndi til sinna vikulegu mótmæla gegn „íslamsvæðingu Vesturlanda“. Þangað mættu líka tugir þúsunda.

Guðlast og tjáningarfrelsi

Trúarlegar skopmyndir eru ekki nýjar af nálinni. Elsta varðveitta myndin af Kristi á krossinum frá upphafsárum kristins átrúnaðar er hinn svokallaði Palatín kross, veggrista sem uppgötvaðist við fornleifauppgröft í Róm 1856.

Áhyggjur af öryggi hafa aukist

Kveikt var í ritstjórnarskrifstofum þýska dagblaðsins Morgenpost í Hamborg um helgina. Blaðið hafði endurbirt myndir úr Charlie Hebdo.

Sjö fórnarlömb heiðruð

„Þeir dóu svo við gætum búið við frelsi,“ sagði Francois Hollande um þrjá lögregluþjóna sem létu lífið í París.

Segja útgáfuna kraftaverk

Ritstjórn Charlie Hebdo heldur ótrauð áfram og sendir frá sér nýtt hefti í þremur milljónum eintaka með nýjum Múhameðsteikningum og sáttarorðum á forsíðunni. Frönsk stjórnvöld herða varnir sínar og segjast í stríði við hryðjuverkamenn. Í Þýskalandi fjölme




Fleiri fréttir

Sjá meira


×