Innlent

Framsóknarmenn andsnúnir ýmsu í fjárlagafrumvarpinu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Fáir stjórnarliðar hafa talað jafn opinskátt um andstöðu sína við fjárlagafrumvarpið og Karl Garðarsson.
Fáir stjórnarliðar hafa talað jafn opinskátt um andstöðu sína við fjárlagafrumvarpið og Karl Garðarsson. Vísir / GVA
Framsóknarmenn eru óánægðir með ýmsa hluti í nýkynntu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Framsóknarmenn mynda meirihluta á þingi með Sjálfstæðisflokki og standa því að fjárlagafrumvarpinu. Formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir, er meðal Framsóknarmanna sem gagnrýnt hefur tillögur frumvarpsins en líklega hefur enginn verið jafn duglegur í gagnrýni sinni og Karl Garðarsson, þingmaður flokksins í Reykjavík.

Gert er ráð fyrir hallalausum rekstri ríkissjóðs í fjárlagafrumvarpinu annað árið í röð. Áfram er gerð rík aðhaldskrafa á ráðuneytin og undirstofnanir þeirra en gefið er í á nokkrum stöðum. Skiptar skoðanir eru á frumvarpinu, líkt og áður. Óvenju mikil óánægja er hinsvegar í stjórnarliðinu og má búast við breytingum á frumvarpinu í meðförum þingsins.

Vísir tók saman fjórar breytingar sem gerðar eru í fjárlagafrumvarpinu sem ekki er einhugur um í stjórnarliðinu.

Fallið er frá sérstakri skattlagningu á sykur í fjárlagafrumvarpi næsta árs.Kristin Duvall
Sykurskatturinn

Frosti Sigurjónsson lýsti yfir efasemdum um lækkun sykurskatts á Facebook-síðu sinni.

Sagði hann rök vera fyrir því að þeir sem borði mikinn sykur borgi fyrir það sérstakan skatt þar sem óhófleg sykurneysla gæti haft alvarlegar heilsufarsafleiðingar. Það yki svo kostnað í heilbrigðiskerfinu.

Vísir / Vilhelm Gunnarsson
Matarskatturinn

Fjölmargir Framsóknarmenn, til að mynda Vigdís Hauksdóttir, Karl Garðarsson og Elsa Lára Arnardóttir, hafa lýst sig andsnúna við hækkun virðisaukaskatts á matvæli.

Óánægjan er svo mikil að samtal er hafið á milli stjórnarflokkanna að hætta við eða draga úr fyrirhuguðum hækkunum.

„Ég mun berjast gegn þessum niðurskurði í fjárlaganefnd þingsins,“ segir Karl um niðurskurðinn.Vísir / Anton Brink
Kynferðisbrot

Karl Garðarsson lýsti undrun sinni á forgangsröðun fjármuna í fjárlagafrumvarpinu og benti á að fella ætti niður framlög til að tryggja skilvirk úrræði þolenda kynferðisbrota.

Hann og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vinna nú að frumvarpi sem á að styrkja stöðu þeirra sem þurfa að sæta heimilisofbeldi.

Halda á áfram átaksverkefni skattrannsóknarstjóra en skera niður fjárframlög.Vísir / Arnþór Birkisson
Skattaeftirlit

Eitt málið til viðbótar sem Karl Garðarsson hefur lýst sig andsnúinn er niðurskurður á fjárframlögum til skattrannsóknarstjóra.

„Þessi ráðstöfun verður þeim mun undarlegri í ljósi þess að í frumvarpinu er viðurkennt að átaksverkefni skattrannsóknarstjóra hafi skilað miklum árangri,“ sagði hann um málið á Facebook.


Tengdar fréttir

Grundvallarmunur á hækkun VSK nú og árið 2011

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir breytingar á skattkerfinu nú eigi að auka kaupmátt og leiði ekki til hækkunar vísitölubundinna lána, ólíkt því sem fyrirhugað var af fyrri stjórn árið 2011

Orð Sigmundar og Bjarna um virðisaukaskatt rifjuð upp

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði að hækkun virðisaukaskatts á matvæli væri aðför að láglaunafólki fyrir þremur árum. Bjarni Benediktsson sagði fyrir fimm árum að skattkerfið á Íslandi yrði sífellt líkara því sem gerist á Norðurlöndunum. Nái fyrirhugaðar breytingar á virðisaukaskattskerfinu fram að ganga verður skattaumhverfið hér á landi enn líkara því sem gerist í Skandinavíu.

Enn meira aðhalds krafist í fjárlagafrumvarpi næsta árs

Framlög til vegamála munu einungis aukast um einn milljarð á næsta ári, en ekki þrjá eins og gert hafði verið ráð fyrir. Hagræðingar er krafist hjá Vinnumálastofnun, umboðsmanni skuldara og skattrannsóknarstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×