Innlent

Framlengja verkefnið „Ísland - allt árið“

Atli Ísleifsson skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu,  Dagur B Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, 
Helga Haraldsdóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Grímur Sæmundsen, formaður SAF.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Dagur B Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Helga Haraldsdóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Grímur Sæmundsen, formaður SAF. Mynd/Atvinnuvegaráðuneyti
Aðstandendur markaðsverkefnisins Ísland - allt árið skrifuðu í dag undir nýjan samning sem gildir út árið 2016. Stjórnvöld munu leggja til allt að 200 milljónir á ári gegn jafn háu mótframlagi frá samstarfsaðilunum; Icelandair, Landsbankanum, Reykjavíkurborg og Samtökum ferðaþjónustunnar.

Í tilkynningu frá atvinnuvegamálaráðuneytinu segir að þátttakendur í Ísland - allt árið séu á einu máli um þann ávinning sem verkefnið hafi skilað hingað til og vænti mikils af samstarfinu næstu tvö árin. Verkefnið sé einstakt samstarfsverkefni þar sem samkeppnisaðilar vinna að sameiginlegu markmiði og því sé mikilvægt að halda áfram þeirri samvinnu og slagkrafti sem verkefnið byggir á. 

„Ísland - allt árið er markaðsverkefni sem hefur staðið undangengin þrjú ár. Tilgangurinn er að festa ferðaþjónustu í sessi sem heilsársatvinnugrein og auka arðsemi af greininni í því augnamiði að hún skapi enn meiri gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið. 

Helstu markmið með Ísland - allt árið eru að jafna árstíðarsveiflu í ferðaþjónustu og styrkja viðhorf og vitund gagnvart Íslandi sem heilsársáfangastað en fjölgun erlendra ferðamanna yfir vetrarmánuðina er sérstaklega mikilvæg til að nýta betur þær miklu fjárfestingar sem ráðist hefur verið í um allt land. Þá er sérstök áhersla lögð á að auka meðalneyslu ferðamanna ásamt því að kynna Ísland sem vettvang fyrir ráðstefnur og hvataferðir. Markaðssetningin fer fram undir formerkjum Inspired by Iceland. 

Íslandsstofa er framkvæmdaraðili verkefnisins,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×