Viðskipti innlent

Framleiðsluverð lækkar um 2 prósent

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir
Vísitala framleiðsluverð í febrúar 2015 var 219 stig og lækkaði um tvö prósent frá janúar 2015. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 271 stig sem er lækkun um 1,9 prósent frá fyrri mánuði Þá var vísitala fyrir stóriðju 226,1 stig og lækkaði um 4,2 prósent. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,2 prósent milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 2,8 prósent.

Miðað við febrúar 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,1 prósent og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 13,2 prósent .Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 22 prósent og matvælaverð um 0,4 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×