Lífið

Framleiðendur Ísland got Talent harma umræðuna: „Keppnin á heimsvísu stendur öllum opin“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/andri marinó
Framleiðendur Ísland Got Talent vilja, í ljósi neikvæðrar umræðu að undanförnu, árétta að keppnin á heimsvísu standi öllum opin, fagmönnum sem og áhugamönnum. Hún sé hugsuð sem vettvangur fyrir fólk á öllum aldri til að sýna hæfileika sína og getu.

Í tilkynningu frá framleiðendunum segir að litlu hafi munað á atkvæðum á milli atriða í keppninni í gær, hún hafi verið jöfn og spennandi. Harma þeir því umræðuna, því keppendur leggi á sig mikla vinnu og erfiði til að gera atriði sín sem best.

Sjá einnig: Hanna Rún verður fyrir barðinu á ævareiðum nettröllum

Tilkynninguna í heild má sjá hér fyrir neðan:

Vegna þeirrar neikvæðu umræðu sem átt hefur sér stað á netheimum í garð eins af atriðum gærkvöldsins vilja framleiðendur Ísland Got Talent árétta að keppnin á heimsvísu stendur öllum opin, fagmönnum jafnt sem áhugamönnum.

Hún er hugsuð sem vettvangur fyrir fólk á öllum aldri til að sýna hæfileika sína og getu hvort sem það hefur starfað við að skemmta fólki eður ei. Keppendur leggja á sig mikla vinnu og erfiði til að gera atriði sín sem best og harma framleiðendur þessa neikvæðu umræðu.  Keppnin í gær var gríðarlega jöfn og spennandi og ekki munaði mörgum atkvæðum á milli atriða.

Framleiðendur vilja þakka öllum keppendum kærlega fyrir alla þá vinnu og dugnað sem þeir hafa lagt í atriðin og þeim sem eiga eftir að keppa í úrslitunum óskum við velfarnaðar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×