Sport

Framkvæmdin heppnaðist fullkomlega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Framkvæmdin á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum var til mikillar fyrirmyndar í Laugardalshöllinni.
Framkvæmdin á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum var til mikillar fyrirmyndar í Laugardalshöllinni. fréttablaðið/andri marinó
EM í hópfimleikum lauk í Laugardalshöllinni á laugardaginn en þó að íslensku kvenna- og stúlknaliðunum hafi ekki tekist að verja titla sína var uppskeran engu að síður glæsileg. Kvennaliðið fékk silfur og stúlknaliðið og unglingalið Íslands í blönduðum flokki fengu brons. Danir sópuðu til sín fimm gullverðlaunum af sex mögulegum en Svíar báru svo sigur úr býtum í kvennaflokki.

Fimleikasamband Íslands stendur þó uppi sem sigurvegari eftir helgina en það fékk einróma lof allra þeirra sem komu að mótinu fyrir framkvæmd þess. „Þetta heppnaðist fullkomlega,“ sagði Arnar Ólafsson, formaður Fimleikasambands Íslands, í samtali við Fréttablaðið í gær.

Hann segir að allar tímaáætlanir hafi staðist og að öll vandamál sem hafi komið upp hafi verið leyst eins fljótt og auðið var. Sjö hundruð erlendir keppendur komu með 700 manna fylgdarlið auk þess sem erlendir áhorfendur voru á annað þúsund.

Arnar segir það mikilvægt að Fimleikasambandið hafi sýnt að það sé hægt að halda stór alþjóðleg íþróttamót á Íslandi með góðum árangri. Meðal sjálfboðaliða á mótinu voru aðilar bæði frá Íþróttasambandi fatlaðra og Körfuknattleikssambandi Íslands til að kynnast framkvæmd mótsins af fyrstu hendi.

„Það er alltaf gott þegar íþróttahreyfingin stendur saman og óskandi að þetta sé vísir að frekara samstarfi á milli sérsambandanna innan ÍSÍ,“ segir Arnar sem var afar þakklátur fyrir störf allra þeirra tæplega 500 sjálfboðaliða sem störfuðu á mótinu.

„Alls voru þetta 1.100 stöðugildi sem þurfti að manna og langflestir þeirra sem stóðu vaktina voru úr fimleikahreyfingunni,“ segir Arnar.

Á næsta ári verður Norðurlandamótið í hópfimleikum haldið hér á landi og þó svo að það verði ekki jafn stórt í sniðum verða þar öll sterkustu liðin mætt til leiks. „Það verður mikil flugeldasýning þó svo að umgjörðin verði ekki jafn stór,“ segir Arnar og bætir við að fimleikasambandið horfi jafnvel til þess að halda fleiri mót í framtíðinni.

„Það kæmi vel til greina af okkar hálfu að halda hér einnig mót í áhaldafimleikum en við þurfum örugglega að bíða í minnst tíu ár þar til EM í hópfimleikum kemur aftur til Íslands enda mikil eftirspurn eftir að halda mótið,“ segir hann.

Ekki hefur enn verið ákveðið hvar EM í hópfimleikum fari fram árið 2016.


Tengdar fréttir

Frjálsíþróttahöllin að breytast í fimleikahöll - myndir

Evrópumótið í hópfimleikum fer fram á Íslandi í næstu viku en mótið hefst á miðvikudaginn og lýkur síðan á laugardaginn. Mótið fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal sem er nú kominn í sparibúninginn.

Danir hlutskarpastir

Danir unnu fimm af sex gullverðlaununum sem í boði voru á Evrópumótinu í hópfimleikum í karlaflokki sem fram fóru í í Laugardal í vikunni og um helgina.

Sjáðu myndasyrpuna úr Laugardalnum í dag

Það var mikið um dýrðir í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag þegar tvöfaldir Evrópumeistarar Íslands stigu á stokk í úrslitum á EM í hópfimleikum. Mótið hefur staðið yfir í Laugardalnum síðan á miðvikudaginn.

Finn ekki fyrir löppunum og held fyrir andlitið

"Þetta verður svakalega spennandi keppni,“segir Íris Mist Magnúsdóttir um einvígið á milli Íslands og Svíþjóðar í kvennaflokki á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fer fram "Fimleikahöllinni“ í Laugardal í dag.

Þjálfarinn sáttur með sínar stúlkur

Bjarni Gíslason, einn þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, sagði flest hafa gengið upp í úrslitunum á EM í hópfimleikum í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag.

Glódís: Förum brosandi frá mótinu

Glódís Guðgeirsdóttir gat litið á björtu hliðarnar þrátt fyrir að Ísland hefði lent í 2. sæti á EM í hópfimleikum.

Myndasyrpa úr Laugardal

Evrópumótinu í hópfimleikum lauk í Laugardal í gær, en þar var mikið fjör og mikil stemning. Íslenska landsliðið lenti í öðru sæti eftir hetjulega baráttu við Svía.

Þórdís: Nutum hverrar mínútu

Þórdís Ólafsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins í blönduðum flokki, var nokkuð sátt með frammistöðu Íslands á lokadegi EM í hópfimleikum sem hefur staðið yfir í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal síðan á miðvikudaginn.

Sif: Við látum ekkert koma okkur úr jafnvægi

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum tryggði sér örugglega sæti í úrslitum EM í hópfimleikum í gær en liðið endaði í 2. sæti í undankeppninni.

Stúlkurnar fengu brons á EM

Unglingalandslið kvenna í hópfimleikum varði ekki Evrópumeistaratitilinn á heimavelli.

Sólveig: Höllin trylltist við hverja lendingu

Sólveig Bergsdóttir og félagar hennar í íslenska landsliðinu í hópfimleikum fengu góðan stuðning þegar undankeppni Evrópumótsins fór fram í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Íslenska liðið náði 2. sæti og tryggði sig örugglega inn í úrslitin.

Við njótum hverrar sekúndu

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum hefur keppni á Evrópumeistaramótinu í dag en mótið fer fram í Laugardalshöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×