Innlent

Framkvæmdastjóri HIV Íslands vill að lögreglan svari fyrir harkalega meðferð á smituðum manni

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Hælisleitandinn í kjölfar þess að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Hælisleitandinn í kjölfar þess að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. vísir/pjetur
Einar Þór Jónsson framkvæmdastjóri HIV Ísland segir að mál HIV smitaða nígeríska hælisleitandans sem kom upp í ágúst, hafi komið samtökunum í opna skjöldu og harkalegar aðgerðir lögreglunnar hafi leitt til frekari ótta og glæpavæðingar sjúkdómsins

Einar Þór segir að svo virðist sem hann hafi hvorki greinst með sjúkdóminn hér á landi né annars staðar þar sem hann hafði dvalið. Eftir standi bara getgátur um þann illa ásetning, að vilja smita ungar konur af HIV. Félagið ætlar að kalla eftir skýringum frá lögreglunni en ekkert hefur komið fram í málinu sem bendir til þess að maðurinn hafi vitað að hann væri smitaður.

Einar Þór Jónssonvísir/ernir
Nígeríumaðurinn var úrskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald í sumar grunaður um að hafa vísvitandi smitað tvær ungar konur af HIV veirunni. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í mánuð og látin sæta farbanni. Hann er enn á landinu þótt hann sæti ekki farbanni lengur, umsókn hans um hæli hefur verið hafnað en mál hans er til meðferðar hjá kærunefnd Útlendingastofnunar. Rannsókn lögreglu er ekki formlega lokið en Einar Þór segir að félagið muni óska eftir skýringum um leið og það gerist enda margt á huldu í málinu.

Hefði Íslenskur millistéttarmaður fengið sömu meðferð?

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn HIV. Einar Þór segir að málið hafi vakið upp spurningar um hvort það séu ennþá meiri fordómar gagnvart þessum sjúkdómi en öðrum smitsjúkdómum? Á að varpa fólki í fangelsi sem smita fólk af þessum sjúkdómi? Hann segir þetta endurspegla viðhorfin í samfélaginu eins og þau voru fyrir 20 til 30 árum þegar fólk var verulega hrætt við HIV jákvætt fólk.

Hann kveðst ekki vita hvort það hafi skipt máli í þessu sambandi að maðurinn var svartur hælisleitandi frá Nígeríu. Hvort Íslendingur úr millistétt hefði fengið sömu meðferð? En menn hljóti þó að spyrja sig þeirrar spurningar.

Fordómar blossa því miður alltaf upp

Helstu smitleiðir breytast nokkuð frá ári til árs, Nýlegar tölur frá Evrópu sýna að innflytjendur og hælisleitendur greinast í auknum mæli með sjúkdóminn. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir að það kunni að vera að það geti leitt til fordóma gagnvart fólki í erfiðri stöðu. Hann segir þó mikið gert til að koma til þeirra læknishjálp og stöðva þannig útbreiðsluna. “Það er erfitt að segja hversu miklir fordómar eru raunverulega í samfélaginu,” segir Þórólfur. “Ég held að þeir hafi minnkað. Þeir blossa því miður allt of oft upp og kannski sýnir þetta dæmi það.”


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×