Fótbolti

Framherjaparið fyrir leikinn gegn Króatíu er klárt

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Hallgrímsson er búinn að mynda sér skoðun.
Heimir Hallgrímsson er búinn að mynda sér skoðun. vísir/ernir
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, er búinn að ákveða hvaða tveir leikmenn byrja í framlínu íslenska liðsins gegn Króatíu í leik liðanna í undankeppni HM 2018 á laugardaginn.

Þetta kemur fram á fótbolti.net en þar segir Heimir: „Við vorum búnir að því fyrir nokkrum dögum en það væri óeðlilegt að segja frá því.“ Hann gefur ekkert meira upp en það.

Mikil meiðslavandræði eru í framlínunni en Alfreð Finnbogason, þriggja marka maður í undankeppninni, er frá vegna meiðsla sem og Kolbeinn Sigþórsson, næst markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi. Þá er Björn Bergmann Sigurðarson einnig meiddur en hann kom inn í hópinn fyrir leikina gegn Finnlandi og Tyrklandi eftir fimm ára fjarveru.

Jón Daði Böðvarsson verður klárlega í byrjunarliðinu en hann er sá eini af fastamönnum í liðinu sem er heill. Ef litið er til hinna framherjanna þykir Viðar Örn Kjartansson lang líklegastur en markahrókurinn frá Selfossi hefur ekki fengið mörg tækifæri undanfarin misseri.

Elías Már Ómarsson og Arnór Smárason eru einnig í hópnum en þá er alltaf möguleiki á að Heimir færi Jóhann Berg Guðmundsson, Birki Bjarnason eða Gylfa Þór Sigurðsson fram með Jóni Daða.

Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur 365, fór yfir þessa möguleika í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær en fréttina má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Heimir: Þetta er okkar stóra tækifæri

Heimir Hallgrímsson segir að nú sé tækifæri fyrir íslensku landsliðsmennina að taka völdin í riðli okkar í undankeppni HM 2018.

„Sumir spila betur ef þeir hugsa þetta sem hefndarför“

Króatía kom í veg fyrir að íslenska landsliðið kæmist á HM í Brasilíu 2014 og íslensku strákarnir fá nú tækifæri til að hefna fyrir tapið í umspilinu þegar þjóðirnar mætast aftur eftir rúma viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×