Viðskipti innlent

Framhaldsskólakennarar hækka um ellefu prósent vegna gerðardóms

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Framhaldsskólakennarar hækka um ellefu prósent eftir úrskurð gerðardóms í kjaradeilu ríkisins við BHM og hjúkrunarfræðinga.

Mikill hiti var í fundarmönnum á miðstjórnarfundi ASÍ í dag sem telja að það stefni í stórslys á vinnumarkaði ef ekki náist að lenda málinu í haust. Hægt er að segja samningum lausum í febrúar ef forsendur þeirra standast ekki.

Samningar framhaldsskólakennarar bruna framúr

Framhaldsskólakennarar fá sjálfvirka ellefu prósenta launahækkun eftir úrskurð Gerðardóms vegna ákvæðis í kjarasamningum þeirra um aðrar stéttir hækki ekki umfram þá.

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir að samningar þeirra séu nú metnir á 45 prósent hækkun meðan kostnaðarmat á almennum vinnumarkaði sé átján prósenta hækkun til fjögurra ára. Þá séu háskólamenn að fá svipaðar launahækkanir á tveimur árum og hinir á fjórum.

Fólki er almennt misboðið

Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að það sama hafi gerst 2013, þegar ríkið hafi samið um miklu meiri hækkanir eftir að samið hafði verið um launahækkanir á almennum vinnumarkaði.

„Ég er alveg sannfærður um það að fólki er almennt misboðið, vegna þess, hvernig kjarasamningar eru almennt teknir hver á fætur öðrum og hrúgað ofan á það, sem þeir fá sem lægstu launin hafa,“ segir Sigurður. „Ég er ekki í vafa um það að fólk telji sig eiga inni miðað við þessa stöðu.“

Enginn sigurvegari

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að sest verði yfir málið í haust og ekki sé útséð um lausn áður en allt fer í bál og brand í febrúar. Það sé þó stjórnvalda að svara því af hverju svona hafi verið staðið að málum. Hann bendir á að í úrskurði gerðardóms séu ríflegar launahækkanir umfram forsendur almennra samninga.  Þá meti gerðardómur samninga ASÍ á 24 prósent þegar átján prósent séu nærri lagi. Hann segir að ríkið hafi gengið á undan og búið til sjálfvirkar tengingar við launahækkanir. Ríkið sé semsagt að búa til ákvæði sem hafi búið til ástand sem ekki sjái fyrir endann á. Hann segir að ræða verði málið á breiðum grundvelli. Út úr þessu höfrungahlaupi launahækkana komi enginn sem sigurvegari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×