Bíó og sjónvarp

Framhald Magic Mike fer í tökur í haust

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
The Playlist staðfestir á síðu sinni að kvikmyndin Magic Mike XXL, framhald myndarinnar Magic Mike sem frumsýnd var árið 2012, fari í tökur í haust.

Leikarinn Channing Tatum skrifar handritið ásamt Reid Carolin sem skrifaði handritið að fyrstu myndinni. Steven Soderbergh leikstýrði þeirri fyrstu en ætlar ekki að leikstýra fleiri myndum og mun framleiða framhaldsmyndina. 

Magic Mike var lauslega byggð á ferli Channings sem karlstrippari áður en hann sló í gegn í Hollywood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×