Bíó og sjónvarp

Framhald Heroes tekið upp á Íslandi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
vísir
Framhald hinna geisivinsælu þátta Heroes, sem bera einfaldlega nafnið Heroes Reborn, var að hluta til tekið upp hér á landi ef marka má tíst frá opinberri Twitter-síðu þáttanna.

Þar segir að þættirnir hafi verið teknir upp víða um heim, svo sem í Tókíó, París, Lundúnum, Toronto og víðar. Sem fyrr segir eru þættirnir framhald þáttanna Heroes sem tröllriðu öllu árunum 2006 til 2010 og sýndir voru hérlendis á Skjá einum. Heroes Reborn er örþáttaröð en á vef IMDB segir að þættirnir verði líklega um 13 talsins. Gamalkunnar hetjur úr Heroes mun þar einnig bregða fyrir, svo sem Noah Bennet, Micah Sanders, Hiro Nakamura og Mohinder Suresh. Hér að neðan má sjá stiklu úr Heroes Reborn en þáttaröðin verður tekin til sýninga 24. september.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×