Innlent

Framboðslisti xD sagður sem B-mynd með Steven Seagal

Jakob Bjarnar skrifar
Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir minna Gunnar Smára á B-mynd með Steven Seagal.
Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir minna Gunnar Smára á B-mynd með Steven Seagal. visir/anton brink
Gunnar Smári Egilsson, talsmaður Sósíalistaflokks Íslands, gefur ekki mikið fyrir framboðslista Sjálfstæðisflokksins í borginni, eins og hann lítur út eftir að hafa verið samþykktur á fulltrúaráðsfundi í gær.

„Miðaldra og gamlir karlar og ungar konur. Eins og B-mynd með Steven Seagal. Eitt einkenni karlrembuklúbba eins og Sjálfstæðisflokkurinn er, er að konum er hent þegar þær öðlast reynslu og styrk. Karlarnir velja konurnar á listann, konurnar ráða í raun engu. Þeim er skipt út um leið og þær öðlast reynslu og styrk. Í þingkosningunum var að það Bjarni Ben og Áslaug (30 ára aldursmunur) og í borginni verður það Eyþór og Hildur (23 ára aldursmunur), u.þ.b. það sem sjá má í hasarmyndum,“ segir Gunnar Smári á Facebooksíðu sinni.

Ekki urðu eins mikil átök á fulltrúaráðsfundinum og vænta mátti. En, þó verulegan skjálfta megi greina innan flokks vegna þess að þeim Áslaugu Friðriksdóttur og Kjartani Magnússyni var ýtt til hliðar, þá er það kannski fyrst og fremst skjálfti vegna ótta við innaflokksátök. Í því ljósi og eftir á að hyggja þarf ekki að koma svo mjög á óvart að listinn hafi verið samþykktur samhljóða.

Gunnar Smári telur það lýsandi að á milli þeirra Bjarna og Áslaugar Örnu er þrjátíu ára aldursmunur.visir/vilhelm
Sósíalistaflokkurinn stefnir á að bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum og samkvæmt heimildum Vísis munu þeir listar liggja fyrir í lok næsta mánaðar. Ekki er við því að búast að Gunnar Smári mæti til leiks sem James Bond með ungan kvenkyns sósíalista sér við hlið til þeirrar rimmu, ef marka má orð hans.

Gunnar Smári heldur áfram í að greina stöðuna á síðu sinni, en hann vill meina að þetta lögmál hasarmyndanna eigi ekki bara við um Sjálfstæðisflokkinn. Heldur sé um að ræða einskonar allsherjarlögmál foringjaræðis sem eigi við um flokkakerfið í heild sinni.

„VG hefur hreinsað burt allar eldri konur úr forystunni. En það á líka við um karlanna. VG er mjög gott dæmi um hvernig klíkur verða eins og foringjarnir á skömmum tíma. Eftir nokkur ár verður þetta hópur fólks þar sem enginn er eldri en sjö árum eldri og enginn yngri en sjö árum yngri en Katrín.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×