Innlent

Framboð Andra Snæs kostaði fimmtán milljónir

Sæunn Gísladóttir skrifar
Andri Snær Magnason hafnaði í þriðja sæti í forsetakosningunum.
Andri Snær Magnason hafnaði í þriðja sæti í forsetakosningunum. Vísir/Hanna
Forsetaframboð Andra Snæs Magnasonar kostaði tæplega 15 milljónir króna. Tekjur numu samtals rúmlega 15 milljónum en afkoma fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam 22.386 krónum. Andri Snær varði hærri fjárhæð í framboð sitt en Halla Tómasdóttir, en lægri fjárhæð en Guðni Th. Jóhannesson og Davíð Oddsson.

Andri Snær styrkti eigið framboð um 960 þúsund krónur. Stærstu styrktaraðilar voru svo Clean Cafe Aps og Títan Fjárfestingafélag sem styrktu framboðið um 400 þúsund krónur sem er hámark fjárframlaga lögaðila. Listaklúbburinn Listvinir styrktu svo framboðið um 320 þúsund krónur.

Fjárframlög einstaklinga námu samtals 12,7 milljónum króna, en rúmlega 200 einstaklingar styrktu framboðið. Hæstu styrktaraðilar sem styrktu framboðið um 400 þúsund krónur voru meðal annars Lilja Pálmadóttir, Magni Sigurjón Jónsson, og Sigurður Gísli Pálmason.

Nú liggur fyrir að Davíð Oddsson eyddi mest allra í forsetaframboð sitt en samanburð á þeim frambjóðendum sem vörðu meira en 400 þúsund krónum má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×