Innlent

Frambjóðendur orðnir stressaðir

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Kjósendur er margir óákveðnir nú þegar skammur tími er til Alþingiskosninganna. Frambjóðendur flokkanna hafa verið á fullu í allan dag við að reyna að koma sínum stefnumálum á framfæri.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar heimsóttu Hárakademíuna í morgun ræddu við nemendur í skólanum. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar segist óneitanlega vera orðin pínu stressuð yfir kosningunum. „Við erum náttúrulega með afskaplega lélegt fylgi og við erum auðvitað stressuð en það er bara hvati til þess að leggja enn harðar að sér. Við verðum að fram til tíu á kjördag þegar kjörstaðir loka og það þýðir ekkert að gefast upp fyrir fram,“ segir Sigríður Ingibjörg.

Lilja Alfreðsdóttir frambjóðandi Framsóknarflokksins fór yfir málin með kjósendum í Múlakaffi í hádeginu. „Við erum bara búin að gera okkar allra besta í þessari kosningabaráttu og svo eru það kjósendur sem ákveða í raun og veru hver næstu skref eru. Ég er mjög sátt við okkar kosningabaráttu og ég mun vera alveg á fullu þar til að kjörstaðir opna og svo bara sjáum við hvað setur,“ segir Lilja.

Á göngum Smáralindar spjölluðu frambjóðendur Pírata við vegfarendur. „Bæklingarnir ganga hratt út og fólk er almennt séð bara mjög jákvætt,“ segir Björn Leví Gunnarsson frambjóðandi Pírata.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir frambjóðandi Viðreisnar ræddi komandi kosningar við kjósendur í Strandgötunni í Hafnarfirði í dag og verslunarmiðstöðinni Firðinum. „Á morgun er ég að fara kjósa nýjan frjálslynda flokk. Þá er ég að merkja x við c en ekki annan bókstaf sem ég hef merkt allt mitt líf þannig að það er skrýtið,“ segir Þorgerður Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×