Handbolti

Fram skaust á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hildur var markahæst í liði Fram með sex mörk.
Hildur var markahæst í liði Fram með sex mörk. vísir/ernir
Fram skaust á topp Olís-deildar kvenna í handbolta með öruggum átta marka sigri, 20-28, á Fylki á útivelli í dag.

Fram hefur náð í sjö stig í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins en liðið er enn ósigrað.

Fylkir hefur hins vegar tapað öllum fjórum leikjum sínum en það stefnir í erfiðan vetur í Árbænum.

Hildur Þorgeirsdóttir var markahæst í liði Fram með sex mörk. Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Steinunn Björnsdóttir komu næstar með fimm mörk hvor.

Thea Imani Sturludóttir var langmarkahæst í liði Fylkis en hún skoraði 11 af 20 mörkum liðsins.

Mörk Fylkis:

Thea Imani Sturludóttir 11, Vera Pálsdóttir 2, Christine Rishaug 2, Hildur Björnsdóttir 2, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1, Hildur Karen Jóhannsdóttir 1, Diljá Mjöll Aronsdóttir 1.

Mörk Fram:

Hildur Þorgeirsdóttir 6, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 5, Steinunn Björnsdóttir 5, Marthe Sördal 3, Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Rebekka Rut Skúladóttir 2, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Elva Þóra Arnardóttir 1, Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×