Handbolti

Fram og Stjarnan skildu jöfn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ragnheiður og Sigurbjörg skoruðu meira en helming marka Fram
Ragnheiður og Sigurbjörg skoruðu meira en helming marka Fram vísir/vilhelm
Fram og Stjarnan gerðu 21-21 jafntefli í annarri umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í dag í Safamýrinni. Stjarnan var 12-10 yfir í hálfleik.

Stjarnan fékk tækifæri til að tryggja sér sigurinn í lokinn en Hanna Guðrún Stefánsdóttir lét verja frá sér úr hægra horninu.

Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði mest fyrir Fram í leiknum, 7 mörk. Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði 5.

Helena Rut Örvarsdóttir og Sólveig Lára Kjærnested skoruðu 4 mörk hvor fyrir Stjörnuna.

Fram er með þrjú stig eftir tvo leiki og Stjarnan sem spáð var titlinum fyrir mót er með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×