Fótbolti

Frakkar hóa í Schneiderlin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Schneiderlin í landsleik.
Schneiderlin í landsleik. vísir/getty
Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, hefur neyðst til þess að gera eina breytingu á EM-hópi sínum.

Lassana Diarra getur nefnilega ekki verið með á EM vegna meiðsla. Hann bætist á meiðslalistann með Raphael Varane og Jeremy Mathieu.

Í hans stað kemur Morgan Schneiderlin, leikmaður Man. Utd.

Gleði fyrir Schneiderlin en svekkelsi fyrir Diarra. Schneiderlin á að baki 13 landsleiki fyrir Frakka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×