Erlent

Frakkar hefja niðurrif Frumskógarins á mánudag

Atli Ísleifsson skrifar
Áætlað er að um sjö þúsund flóttamenn dvelji nú í búðunum við afar slæmar aðstæður.
Áætlað er að um sjö þúsund flóttamenn dvelji nú í búðunum við afar slæmar aðstæður. Vísir/AFP
Frönsk yfirvöld munu byrja á því að ryðja búðir flóttamanna í hafnarborginni Calais, sem jafnan ganga undir nafninu Frumskógurinn, á mánudag eftir helgi.

Áætlað er að um sjö þúsund flóttamenn dvelji nú í búðunum við afar slæmar aðstæður. Þeim sem þar dvelja verður boðin aðstaða á heimilum fyrir flóttafólk á öðrum stöðum í Frakklandi, meðal annars í höfuðborginni París.

Flestir þeir flóttamenn sem hafa dvalið í búðunum í Calais stefna að því að komast til Bretlands um Ermarsundsgöngin og hafa margir reynt að smygla sér um borð í vörubíla sem sé stefnt til Bretlands um göngin.

BBC greinir frá því að sextíu rútur verði notaðar til að flytja flóttamennina frá Calais og til heimila fyrir flóttafólk annars staðar í landinu.

Talsmaður innanríkisráðuneytis landsins segir að yfirvöld verði með mikinn viðbúnað þegar byrjað verður að taka niður tjöldin og skýlin á mánudag, enda eigi þau von á að til átaka geti komið.


Tengdar fréttir

Hollande ætlar sér að loka Calais-búðunum

Hollande Frakklandsforseti krefst að Bretar taki þátt í kostnaðinum. Vinna við gerð múrs milli búðanna og þjóðvegarins að Ermarsundsgöngunum er hafin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×