Lífið

Frakkar hafa nú þegar keypt dreifingarrétt á hinum íslensku Hrútum

Guðrún Ansnes skrifar
Spennandi tímar Grímar Jónsson, framleiðandi myndarinnar, er að vonum spenntur fyrir framhaldinu. Að myndinni kemur fjöldi góðs fólks, sem hann segir skipta öllu máli.
Spennandi tímar Grímar Jónsson, framleiðandi myndarinnar, er að vonum spenntur fyrir framhaldinu. Að myndinni kemur fjöldi góðs fólks, sem hann segir skipta öllu máli. Fréttablaðið/Valli
Dreifingarréttur kvikmyndar Gríms Hákonarsonar, Hrúta, eða Rams, eins nafnið útleggst á ensku, hefur verið seldur.

Þykir það sæta töluverðum tíðindum en myndin var nýlega tilnefnd til verðlauna í Un Certain Regard keppninni og er því í hópi kvikmynda í Cannes Official Selection í ár.

Flokkurinn Un Certain Regard er til þess gerður að gera kvikmyndum þar sem frumleiki og hugrekki er í fyrirrúmi hátt undir höfði.

Í því samhengi er meðal annars átt við styrki til dreifingar á kvikmyndinni í Frakklandi.

Grímar Jónsson, framleiðandi myndarinnar, er að vonum alsæll með stöðu mála.

„ARP Sélection er eitt stærsta og virtasta dreifingarfyrirtæki Frakklands svo þetta er afar gleðilegt,“ segir Grímar

Aðspurður um hvað svona sala hafi í för með sér segir Grímar að það séu gríðarleg forréttindi að vera í þessari stöðu fyrir hátíðina, sem er ein sú stærsta sinnar tegundar þegar kemur að uppskeruhátíðum kvikmyndabransans. „Það er býsna heppilegt að hafa þessa aðila með sér í liði þegar við mætum til keppni, og getur hjálpað okkar stöðu heilmikið,“ útskýrir Grímar.

Sala dreifingarréttar hefur því mögulega veruleg áhrif á sýnileika þegar kemur að stóru stundinni, og skiptir hann býsna miklu máli.

„Allar þær fréttir sem hafa skotið upp kollinum hafa komið mér á óvart,“ segir Grímar og bætir hógvær við: „Við vissum að við værum með góða mynd í höndunum en áttum satt best að segja ekki von á því að komast í Official Selection.“

Kvikmyndin Hrútar mun keppa til verðlauna þann 21. maí næstkomandi og mun stórleikkonan Isabella Rossellini, forseti dómnefndar, veita verðlaunin við hátíðlega athöfn. Því ber að halda til haga að á meðal þekktra leikstjóra sem hafa sýnt myndir sínar í Un Certain Regard eru kanónurnar Gus Van Sant, Sofia Coppola og Steve McQueen.

mynd/brynjar snær þrastarson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×