Handbolti

Frakkar gerðu lítið úr Hvít-Rússum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luka Karabatic var frábær í vörninni í kvöld.
Luka Karabatic var frábær í vörninni í kvöld. vísir/epa
Heims, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka pökkuðu Hvíta-Rússlandi saman, 34-23, í fyrsta leik milliriðils eitt á Evrópumótinu í handbolta í dag.

Þrátt fyrir stórsigur segja lokatölurnar nánast ekkert um gang leiksins því Frakkland hefði auðveldlega getað unnið leikinn með meira en 20 mörkum hefði það keyrt hraðann og spilað á sínum bestu mönnum allan tímann.

Frakkar komust í 4-0 áður en Hvít-Rússar skoruðu fyrsta markið eftir tæpar sjö mínútur, en staðan eftir 14 mínútur var 10-4 fyrir meistarana. Þá skiptu Frakkarnir upp um gír, skoruðu átta mörk í röð og komust í 18-4. Í hálfleik munaði 15 mörkum, 20-5.

Franska liðið var að spila ótrúlegan handbolta, þá sérstaklega varnarleik en leikmenn Hvíta-Rússlands litu út eins og byrjendur á móti Frökkunum. Nicola Karabatic gerði það sem hann vildi í sóknarleiknum og skoraði níu mörk úr níu skotum og þá varði Thierry Omeyer tíu skot í fyrri hálfleik.

Frakkar sendu eðlilega „varaliðið“ inn í seinni hálfleikinn til að hvíla sínar helstu stjörnur enda leikurinn fyrir löngu unninn. Franski varnarveggurinn hélt fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik þar til Hvít-Rússar gengu á lagið gegn mátulega áhugalausum Frökkunum og skoruðu ellefu mörk á næstu tíu mínútum. Fleiri mörk en þeir skoruðu fyrstu 40 mínútur leiksins.

Eftir að fá 67 prósent markvörslu í fyrri hálfleik frá Omeyer varði Vincent Gerard, markvörður Montpellier, aðeins sjö skot og var með 33 prósent hlutfallsmarkvörslu.

Nicola Karabatic endaði markahæstur hjá Frökkunum með níu mörk þrátt fyrir að spila bara fyrri hálfleikinn en næstur kom Nedim Remili með fimm mörk. Hjá Hvíta-Rússlandi var Aliaksei Khadkevich markahæstur með níu mörk úr fjórtán skotum en í markinu varði Viachaslau Saldatsenka þrettán skot og var með 31 prósent hlutfallsmarkvörslu.

Frakkar eru nú með fjögur stig í milliriðli eitt líkt og Noregur og Pólland. Þau mætast á morgun þegar Frakkar og Króatar eigast við en í kvöld mætast Makedónía og Króatía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×