Körfubolti

Frakkar fengu bronsið á EM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tony Parker er leikstjórnandi Frakklands.
Tony Parker er leikstjórnandi Frakklands. vísir/getty
Ríkjandi Evrópumeistarar Frakka unnu Serbíu, 81-68, í leiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í körfubolta í dag.

Frakkar voru fimm stigum yfir í hálfleik, 37-32, og gengu frá leiknum í þriðja leikhluta sem þeir unnu með níu stiga mun, 21-12.

Nando De Colo, fyrrverandi leikmaður San Antonio Spurs, var stigahæstur á vellinum, en hann skoraði 20 stig fyrir Frakka. Tony Parker skoraði þrettán stig. Hjá Serbíu var Bogdan Bogdanovic stigahæstur með 14 stig.

Úrslitaleikurinn hefst klukkan 17.00 en þar mætast Spánn og Litháen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×