Tónlist

Frægt, allsbert fólk í nýju myndbandi Kanye West

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Gefið er í skyn að fræga fólkið í myndbandi hafi nýlokið svakalegri orgíu.
Gefið er í skyn að fræga fólkið í myndbandi hafi nýlokið svakalegri orgíu. Vísir/Tidal
Nýjasta myndband rapparans Kanye West hefur vakið gífurlega athygli um helgina en í því má sjá haug af frægu fólki nakið. Lagið heitir Famous og sleppti rapparinn myndbandinu lausu á laugardag í gegnum Tidal tónlistarveituna.

Myndbandið sýnir tólf manns liggja í einu stóru rúmi og eru allir allsberir. Þar eru auðvitað Kanye og eiginkona hans Kim Kardashian ásamt tíu manns sem eru víst annað hvort vaxdúkkur eða hið raunverulega fólk.

Þarna á meðal eru Bill Cosby, Donald Trump, Caitlyn Jenner, George W Bush, Anna Wintour, Rihanna, Christ Brown, Ray J sem er fyrrverandi hennar Kim og Amber Rose sem er fyrrverandi hans Kanye.

Kanye West og Taylor Swift voru eitt sinn félagar... en nú er víst úti ævintýri.Vísir/Getty
Taylor Swift sögð íhuga lögsókn

Við hlið Kanye West í myndbandinu er nakin vaxdúkka af poppstjörnunni Taylor Swift sem sýnir brjóst hennar. Söngkonan vissi víst ekkert af gerð myndbandsins og er ekki par hrifinn af uppátækinu. Hún er sögð vera að íhuga málsókn vegna þessa. Það virðist vera akkúrat það sem rapparinn vill því á Twitter síðu sinni sagði hann um helgina; „nennir einhver að lögsækja mig?“.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem rapparinn reitir Taylor Swift til reiði en í laginu sem myndbandið er við segir meðal annars í texta þess; „mér finnst eins og ég og Taylor Swift eigum eftir að sofa saman, ég gerði þessa tík fræga“.

Eiginkona Kanye segir hann hafa fengið leyfi frá henni símleiðis en talsmenn Swift segja það vera lygi. West á einnig að hafa beðið söngkonuna um að gefa út lagið fyrst á Twitter síðu sinni sem hún hafnaði á sínum tíma.

Aðrir sem birtast í myndbandinu hafa ekki tjáð sig um málið.

Í viðtali við Vanity Fair sagði rapparinn að myndbandið væri ekki gert til þess að hæla eða draga niður neitt sem í því birtist, heldur væri það listræn túlkun á hugmyndinni um frægð.

Myndbandið var aðeins gefið út á Tidal og því er aðeins hægt að sjá myndbönd sem fjalla um það á Youtube. Hér fyrir neðan má sjá stutta klippu úr því sem rapdose.com birti um helgina.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×