Innlent

Frægasti stóðhestur Íslands fallinn

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Indriði Ólafsson frá Þúfu, ræktandi Orra.
Indriði Ólafsson frá Þúfu, ræktandi Orra. Mynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Orri frá Þúfu, þekktasti stóðhestur landsins, er fallinn. Orri varð tuttugu og átta vetra gamall og var dýrasti stóðhestur landsins síðastliðin fimmtán til tuttugu ár. Afkvæmi Orra voru um 1.320 talsins þegar hann var felldur en það eru að meðaltali um sextíu afkvæmi á ári síðan hann var þriggja vetra.

Folatollar undir hann seldust fyrir um 500 þúsund krónur en áætlað er að verðmæti afkvæma hans  sé um tveir milljarðar króna. Anna Berglind Indriðadóttir á Þúfu var einn eigenda Orra. Hún segir Orra hafa verið mikinn karakter og óvenjugáfaða skepnu.

„Orri var einstakur og það vissu allir hver hann var, jafnvel þeir sem ekki voru í hestamennsku,“ segir hún.

Orri var margverðlaunaður og frægur um allan heim, en Anna segir að erlendir hestaáhugamenn hafi oft komið í sérstakar pílagrímsferðir hingað til lands til að berja hann augum.

Orri hlaut meiðsli á hálsi í mars á þessu ári og háði það honum nokkuð í hreyfingum. Í framhaldinu var ákveðið að halda ekki hryssum undir hann í sumar. Nýlega var svo gerð úttekt á stöðu mála og þar sem engin breyting var sjáanleg ákváðu stjórnarmenn í hlutafélagi um Orra, Orrafélaginu, að hér færi best á að enda ævintýrið mikla sem ævi Orra hefur verið.

Orri var heygður á fæðingarstað sínum Þúfu, þar sem hann bjó alla tíð. Anna segir ákveðnu tímabili nú lokið. 

„Það er ótrúlega skrítið að hugsa til þess að hann sé farinn þar sem þetta er orðinn svo langur tími. Okkar líf hefur að miklu leyti snúist um þetta síðustu áratugi og það er auðvitað mikil eftirsjá að honum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×