Íslenski boltinn

Frábært hælspyrnumark Hörpu á Selfossi | Sjáðu öll mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stjarnan vann 3-1 sigur á Selfoss í Pepsi-deild kvenna í kvöld, en Harpa Þorsteinsdóttir skoraði frábært mark á JÁVERK-vellinum í kvöld.

Harpa kom Stjörnunni yfir með frábæru marki, en það má sjá í sjónvarpsglugganum hér efst í fréttinni.

Donna Kay Henry skoraði gegn sínum gömlu félögum á Selfossi auk þess sem Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði fyrir Stjörnuna.

Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði fyrir Selfoss, en Selfoss er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina. Stjarnan er með fullt hús stiga.

Markið glæsilega má sjá í glugganum efst í fréttinni, en Fannar Freyr Magnússon var á staðnum og tók þetta allt upp. Öll mörkin má svo sjá hér að neðan.

Sjáðu öll mörkin:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×