Lífið

Frábærir listamenn koma fram á tónleikum til styrktar Frú Ragnheiði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur og Gauti koma fram.
Hildur og Gauti koma fram.
Rauði krossinn í Reykjavík í samstarfi við Kex Hostel efnir til góðgerðartónleika á Kex Hostel í kvöld en fram koma nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum Íslands eins og sjá má hér að neðan:

Cheddy Carter

Omotrack

Berndsen

Emmsjé Gauti

Hildur

Öll innkoman af tónleikunum rennur til verkefnisins Frú Ragnheiður – skaðaminnkun sem er verkefni sem hefur það markmið að ná til jaðarsetta hópa í samfélaginu, eins og heimilislausra einstaklinga og fólks með fíknivanda. Frú Ragnheiður er sérinnréttaður gamall sjúkrabíll sem er ekið um götur höfuðborgarsvæðisins á kvöldin, alla virka daga.

Miðaverð er litlar 1500 krónur og verður posi á staðnum til að greiða miðana. Tónleikarnir verða inn á Gym og Tonik salnum og opnar húsið klukkan 19:30. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Hljóð X og Kex Hostel en fyrirtækin gefa Rauða krossinum afnot af hljóðkerfi annars vegar og frábærum tónleikastað hins vegar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×