Handbolti

Frábær viðbrögð Alfreðs við glæsimarki Arons

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson skoraði stórglæsilegt mark í upphafi síðari hálfleiks í viðureign Kiel og Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni nú í kvöld.

Sóknin var við það að renna út í sandinn þegar að Aron tók sig til og negldi boltanum upp í markvinkilinn fjær. Stórbrotið mark og eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði gat Alfreð Gíslason ekki annað að hrista bara hausinn og hlæja.

Myndbandið talar sínu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×