Fótbolti

Frábær sigur Nordsjælland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar Alex og félagar unnu afar sterkan sigur á Bröndby.
Rúnar Alex og félagar unnu afar sterkan sigur á Bröndby. vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson stóð í marki Nordsjælland sem vann góðan sigur á Bröndby, 2-3, í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Með sigrinum komst Nordsjælland upp í 9. sæti deildarinnar.

Hjörtur Hermannsson var á sínum stað í vörn Bröndby sem er áfram í 2. sætinu þrátt fyrir tapið í dag.

Elfar Freyr Helgason lék sinn fyrsta leik fyrir Horsens þegar liðið sótti topplið FCK heim.

Elfar vill eflaust gleyma þessari frumraun sem fyrst því Horsens steinlá, 5-0.

Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Horsens og lék fyrsta klukkutímann. Liðið er í 10. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×