Handbolti

Frábær sigur Kristianstad í Celje

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslendingarnir í Kristianstad skoruðu samtals átta mörk gegn Celje.
Íslendingarnir í Kristianstad skoruðu samtals átta mörk gegn Celje. vísir/hanna
Íslendingaliðið Kristianstad vann frábæran sigur á Celje Pivovarna Lasko á útivelli, 27-28, í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Íslendingarnir þrír stóðu fyrir sínu og skoruðu samtals átta mörk fyrir sænsku meistarana.

Arnar Freyr Arnarsson og Ólafur Guðmundsson skoruðu báðir þrjú mörk. Sá síðarnefndi fékk einnig þrjár tveggja mínútna brottvísanir og þar með rautt spjald. Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk í leiknum.

Kristianstad er í 6. sæti B-riðils með sex stig.

Kiel er komið með 11 stig í A-riðli eftir fimm marka sigur, 25-30, á svissneska liðinu Kadetten Schaffhausen í dag.

Niclas Ekberg var markahæstur hjá Kiel með sjö mörk. Liðið á fjóra leiki eftir í riðlinum.

Aron Pálmarsson lék ekki með Veszprém vegna meiðsla þegar liðið tapaði 25-30 fyrir Barcelona á heimavelli í A-riðli.

Veszprém er í 4. sæti riðilsins með 10 stig en Barcelona er á toppnum með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×