Handbolti

Frábær sigur Kristianstad á Evrópumeisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnar Steinn skoraði fjögur mörk.
Gunnar Steinn skoraði fjögur mörk. vísir/getty
Íslendingaliðið Kristianstad gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra marka sigur, 29-25, á Evrópumeisturum Kielce í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag.

Frábær sigur hjá Kristianstad sem á enn von um að komast upp úr riðlinum og í 16-liða úrslit.

Íslendingarnir í liði Kristianstad skoruðu samtals níu mörk í leiknum.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum, Ólafur Guðmundsson þrjú mörk úr níu skotum og Arnar Freyr Arnarsson tvö mörk úr jafn mörgum skotum.

Síðasti leikur Kristianstad í riðlinum er gegn toppliði Vardar á sunnudaginn eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×