Körfubolti

Frábær sigur Kanínanna á toppliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bonneau skoraði 19 stig.
Bonneau skoraði 19 stig. vísir/stefán
Svendborg Rabbits vann afar góðan sigur á toppliði Horsens, 77-91, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Lærisveinar Arnars Guðjónssonar voru búnir að tapa fjórum leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld. Kanínurnar rifu sig hins vegar upp gegn toppliði deildarinnar.

Axel Kárason lék ekki með Svendborg í kvöld vegna meiðsla.

Stefan Bonneau, fyrrverandi leikmaður Njarðvíkur, var næststigahæstur í liði Svendborg með 19 stig. Hann tók einnig fimm fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Kanínurnar eru í 3. sæti deildarinnar með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×