Sport

Frábær sigur hjá stelpunum okkar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir átti mjög góðan leik.
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir átti mjög góðan leik. Vísir/Ernir
Íslenska kvennalandsliðið í blaki hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitum EM Smáþjóða þrátt fyrir að eiga eftir að spila einn leik. Íslands vann 3-1 sigur á gestgjöfum Lúxemborgar í gær.

Fyrirliðinn Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir var stighæst á móti Lúxemborg með 17 stig. Íslenska liðið tapaði fyrstu hrinu en vann síðan þrjár í röð og tryggði sér sigurinn.

Íslensku stelpurnar þurfa hinsvegar sigur gegn Norður Írlandi í dag til að tryggja sér efsta sætið í riðlinum og þar með að komast í 2. umferð HM.

Ísland byrjaði leikinn illa gegn Lúxemborg í gær. Liðið náði ekki góðu spili í byrjun og var Lúxemborg með yfirburði til að byrja með. Ísland komst inn í leikinn og minnkaði muninn sem endaði með sigri Lúxemborgar 25-21.

Ísland seig fram úr strax í annarri hrinu sem var þó spennandi á köflum. Ísland vann hrinuna 25-19. Eftir það var þetta aldrei í hættu og vann Ísland hrinu 3 og 4 með sama mun, 25-17 og 25-17, þar með unnin leik 3-1.

Stigahæst í liði Íslands var fyrirliðinn Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir með 17 stig en Elísabet Einarsdóttir skoraði 13 stig og Thelma Dögg Grétarsdóttir 12 stig.

Ísland er í efsta sæti riðilsins með tvo sigra. Lúxemborg vann lið Norður Írlands 3-0 í gær og Skotland gerði það sama í dag. Í dag spila Norður Írland og Ísland kl. 13.30 að íslenskum tíma og svo Skotland og Lúxemborg í lokaleik mótsins kl. 16.00.

Íslenski hópurinn í Lúxemborg.Mynd/Blaksamband Íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×