Handbolti

Frábær lokakafli bjargaði skylduverkinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson kom inn af krafti í leikinn í gær en hann spilaði líka af skynsemi. Hér brýst hann í gegnum vörn Angóla í gærkvöldi.
Gunnar Steinn Jónsson kom inn af krafti í leikinn í gær en hann spilaði líka af skynsemi. Hér brýst hann í gegnum vörn Angóla í gærkvöldi. vísir/EPA
Það er ekki alltaf auðvelt verk að spila gegn liði eins og Angóla. Það vita allir að þetta er leikur sem á að vinnast frekar auðveldlega. Að gíra sig upp í slíka leiki er því nokkuð vandasamt.

Sú staðreynd að markatalan í riðlinum gæti skipt máli að lokum hjálpaði örugglega okkar mönnum að mæta vel stemmdir til leiks. Þeir voru það líka strákarnir og gerðu nákvæmlega það sem þarf að gera gegn Angóla. Keyra hraðaupphlaup og hraða miðju enda er lið Angóla oft lengi að skila sér til baka.

Björgvin var í banastuði í markinu og varði 13 skot í fyrri hálfleik. Það var 60 prósent markvarsla. Guðjón Valur skoraði átta mörk og alls skoraði liðið úr sjö hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik. Síðustu átta mínúturnar fóru 1-0 fyrir Ísland og því var svolítið svekkjandi að munurinn var „aðeins“ átta mörk, 16-8, í hálfleik.

Geir hristi aðeins upp í liðinu í síðari hálfleik en það virkaði bara alls ekki. Einbeitingin og krafturinn var ekki sá sami og Aron Rafn varði ekki skot í markinu. Er 20 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan 8-8 í hálfleiknum. Alls ekki nógu gott og íslenska liðið var einfaldlega að spila illa.

Strákarnir rifu sig aftur á móti upp á lokakaflanum og lönduðu fjórtán marka sigri. Mjög dýrmætt að hafa þó unnið með þetta miklum mun að lokum.

Björgvin frábær í markinu

Björgvin Páll var frábær í markinu í þessum leik og endaði með 55 prósent markvörslu. Hann heldur áfram að skila sínu til liðsins og sérstaklega ánægjulegt að hann hafi náð að spila nokkuð vel í síðari hálfleik líka núna.

Fyrirliðinn Guðjón Valur fór fyrir sínu liði framan af er munurinn var byggður upp og sjálfstraustið lamið úr Angólamönnum. Bjarki Már leysti hann vel af hólmi í síðari hálfleik. Ég hefði viljað sjá meira og sterkara framlag frá Ómari Inga og Arnari Frey. Kári Kristján og Ásgeir Örn eru heldur ekki að ná sér í gang. Ekki einu sinni gegn Angóla. Það er ekki nógu gott mál.

Gunnar Steinn spilaði mikið. Lék af krafti og skynsemi. Oft gott að þekkja sín takmörk og ana ekki út í vitleysu og spilamennska Gunnars er sífellt að verða þroskaðri. Arnór Atlason þurfti að spila mikið í þessum leik. Þurfti að stýra liðinu og axla mikla ábyrgð. Vonandi kemur það ekki niður á honum að hafa þurft að spila þetta mikið.

Örlögin í þeirra höndum

Fyrsti sigurinn er kominn í hús og staðan er sú að strákarnir hafa væntan­lega örlög sín í eigin höndum. Þá mæta þeir Makedóníumönnum í lokaleik riðlakeppninnar en Makedóníumenn þurfa að spila við Spánverja í kvöld. Þeir mæta vonandi þreyttir og lamdir í lokaleikinn. Þriðja sætið er enn möguleiki og það væri frábært hjá strákunum að ná því. Þeir eru einu skrefi frá þeim árangri og verkefnið í lokaleiknum verður verðugt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×