Sport

Frábær greining á bardaga Gunnars og Tumenov | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar í góðri stöðu gegn Tumenov.
Gunnar í góðri stöðu gegn Tumenov. vísir/getty
„Hann er fastur undir ísnum,“ sagði Luke Thomas hjá mmafighting.com er hann greindi bardaga Gunnars Nelson og Albert Tumenov.

Thomas var afar hrifinn af frammistöðu Gunnars Nelson gegn Rússanum Albert Tumenov.

Thomas tók bardagann sérstaklega fyrir í innslagi sínu á síðunni í gær. Þar greinir Thomas bardagann í ræmur.

Sjá einnig: Sjáðu bardaga Gunnars og Tumenov í heild sinni

„Hvert einasta smáatriði er í lagi hja Gunna. Þetta er gallalaust jiu jitsu,“ segir Thomas um gólfglímuna hjá Gunnari og bætir við.

„Þvílík frammistaða hjá Gunnari. Hann var lika flottur standandi. Þetta var góð alhliða frammistaða og gæti verið hans besta á ferlinum.“

Innslagið er mjög áhugavert og það má sjá hér. Greiningin á bardaga Gunnars hefst eftir 12 mínútur.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Þetta var stórsigur fyrir mig

"Mér líður alveg ljómandi vel. Það er eiginlega ekki annað hægt. Þetta gekk glimrandi vel,“ segir Gunnar Nelson en hann var þá nýbúinn að vinna Rússann Albert Tumenov í UFC-bardaga í Rotterdam.

Gunnar Nelson tileinkaði móður sinni sigurinn

"Ég ætla fá að nota tækifærið og tileinka þennan sigur móður minni, því það er jú mæðradagurinn,“ sagði Gunnar Nelson í viðtali inni í hringnum eftir að hann hafði unnið yfirburðasigur á Rússanum Albert Tumenov í Rotterdam í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×