Tíska og hönnun

Frábær förðunaröpp

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
L'Oreal Makeup Genius.
L'Oreal Makeup Genius.
Gróska í förðunarsmáforritum er mikil og hér er tvö sem hafa vakið mikla lukku.

L'Oreal Makeup Genius

Hér er á ferð nýtt app frá snyrtivörurisanum L'Oreal en það virkar eins og spegill og gerir notendum kleift að prófa snyrtivörur stafrænt. Þá er einnig hægt að prófa vinsæla förðun af rauða dreglinum sem stjörnur eins og Lupita Nyong'o og Jennifer Lopez hafa skartað.

Sephora To Go

Hér er lögð mikil áhersla á að veita notendum innblástur, hvort sem það er fyrir förðun eða hárgreiðslur. Þá er einnig eitthvað um sýnikennslu í smáforritinu og hægt að lesa umsagnir annarra notenda um hinar ýmsu snyrtivörur.

Sephora To Go.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×