Skoðun

Frábær árangur Fellaskóla í lestri

Ragnar Þorsteinsson skrifar
Í Fellaskóla í Breiðholti eiga sjö af hverjum tíu nemendum annað móðurmál en íslensku. Fjöldi tví- og margtyngdra barna í skólanum endurspeglar íbúasamsetningu í Fellahverfi þar sem fjölmargir eru af erlendum uppruna. Árangur nemenda í lestri og lesskilningi hefur að vonum verið lakari en í öðrum skólum þar sem hlutfall barna með íslensku að móðurmáli er til muna hærra. En nú hefur orðið á þessu merkilegur viðsnúningur sem vert er að vekja athygli á.

Stökk upp á við í lestrarfærni

Lesskimunin Læsi hefur verið lögð fyrir nemendur í 2. bekk í Fellaskóla frá árinu 2003. Á tímabilinu 2003-2013 var hlutfall nemenda sem gat lesið sér til gagns á bilinu 22-49% og var það hlutfall jafnan undir meðaltali annarra skóla borgarinnar. Á undanförnum tveimur árum hefur hins vegar hlutfall þeirra barna sem geta lesið sér til gagns í Fellaskóla tekið mikið stökk upp á við. Í fyrra gátu 65% nemenda lesið sér til gagns og var það aðeins einu prósentustigi undir meðaltali í borginni allri. Í vor mældist þetta hlutfall í Fellaskóla svo það hæsta frá upphafi, eða 67%, og er nú í fyrsta skipti yfir meðaltali í borginni. Starfsfólk, nemendur og foreldrar í Fellaskóla hafa ríka ástæðu til að fagna þessum árangri en að honum hefur verið unnið markvisst undanfarin ár með samstilltu átaki.

Í þessum fjölmenningarlega skóla hefur verið lögð aukin áhersla á markvissa málörvun, læsi og lestur og nýjar kennsluaðferðir hafa verið innleiddar. Meðal annars var innleidd lestrarkennsluaðferðin PALS sem byggir á samvinnunámi. Stóraukin áhersla var jafnframt lögð á að bæta orðaforða, m.a. í gegnum spil og leiki. Kennarar unnu vel saman, höfðu mikla trú á getu nemenda, lögðu sig fram um að hrósa þeim og hvetja og gera til þeirra hæfilegar kröfur.

Góðar kennslustundir

Í vor tók Fellaskóli í þriðja sinn þátt í ytra mati á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar en slíkt mat fer fram reglulega í grunnskólum borgarinnar. Niðurstöðurnar voru afar góðar og ljóst að markvisst hefur verið unnið að því að bæta nám og kennslu. Um 80% kennslustunda voru metin góð eða frábær og jafnframt mátti greina að fjölmörg þróunarverkefni, s.s. 1.2 og Fellaskóli – samþætt skóla- og frístundastarf í 1. og 2. bekk og Okkar mál, hafa skilað nemendum betri og heildstæðari þjónustu. Í matinu kom einnig fram að nemendur voru bæði ánægðir með kennarana sína og þann góða anda sem þeim fannst ríkja í skólanum.

Skólasamfélag Fellaskóla má svo sannarlega vera stolt og ánægt af þessum árangri. Þessi viðsnúningur sýnir vel hvernig fagleg forysta, samhent átak og uppbyggilegt foreldrasamstarf getur skapað betri grundvöll til náms.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×